Komin inn á hættulega braut ef bóndi getur ekki verið landbúnaðarráðherra

Kristján Þór Júl­í­us­son telur sig ekki van­hæfan til að koma að und­ir­bún­ingi eða fram­lagn­ingu frum­varpa um mak­ríl­kvóta þótt Samherji eigi þar undir mikla fjár­hags­lega hags­muni. Sama gildi um kvóta­þak. Það sé alltaf Alþingi sem á end­anum setji lög.

„Ég er sam­mála þér í því að við værum komin inn á hættu­lega braut ef til dæmis bóndi gæti ekki verið land­bún­að­ar­ráð­herra,“ sagði Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, i svari við spurn­ingu Óla Björns Kára­sonar, sam­flokks­manns hans og nefnd­ar­manns í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, um hvort að það væri hættu­legt ef að þátt­tak­endur í við­skipta­líf­inu gætu ekki síðar sest á þing og tekið þátt í laga­setn­ingu.

Sam­skiptin áttu sér stað á opnum fundi í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd í morgun þar sem frum­kvæð­is­at­hugun á hæfi Krist­jáns Þórs til sinna sínum störfum vegna tengsla sinna við Sam­herja.

Áður hafði Kristján Þór meðal ann­ars verið spurður af Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, for­manni nefnd­ar­innar og þing­manni Pírata, um almennt hæfi sitt til að koma til dæmis að ákvörð­unum um laga­setn­ingu og fram­fylgd laga um stjórn fisk­veiða sem snúa að svoköll­uðu kvóta­þaki.

Þau lög, eins og þau eru í dag, segja að tengdir aðilar megi ekki halda á meira en tólf pró­sent af úthlut­uðum heild­ar­kvóta hverju sinni. Til að telj­ast tengdur aðili þarf að eiga meiri­hluta í öðru félagi.

Samherji og Síldarvinnslan

Grun­semdir hafa lengi verið um að farið sé á svig við þetta ákvæði laga. Þekktasta og umdeildasta dæmið teng­ist Samherja og Síld­ar­vinnsl­unni. Eigendur þess fyrr­nefnda eiga, beint og óbeint, 49,9 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni og eru þar með eins lítið undir meiri­hluta­hlut­fall­inu og hægt er að vera. Þor­steinn Már Bald­vins­son, einn aðal­eig­andi Samherja og fyrr­ver­andi for­stjóri þess fyr­ir­tækis, var árum saman for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar á sama tíma, þangað til að hann sagði af sér báðum störfum, að minnsta kosti tíma­bundið, eftir að Sam­herj­a­málið kom upp í fyrra­haust. For­svars­menn Samherja og Síld­ar­vinnsl­unnar hafa hins vegar ætið svarið af sér að um tengda aðila væri að ræða.

Ástæðan er sú að ef Samherji og Síld­ar­vinnslan væru flokk­aðir sem tengdir aðilar væru þeir komnir langt yfir það 12 pró­sent kvóta­há­mark sem eitt íslenskt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, eða sam­stæða, má halda á.

Í sept­em­ber 2019 var Sam­herji með 7,1 pró­sent kvót­ans. Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyrar, sem er í 100 pró­sent eigu Samherja, heldur svo á 1,3 pró­sent kvót­ans og Sæból fjár­fest­inga­fé­lag heldur á 0,64 pró­sent hans. Síld­ar­vinnslan heldur á 5,3 pró­sent allra afla­heim­ilda og sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Berg­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar.

Sam­an­lagt er afla­hlut­deild þess­ara aðila er því rúm­lega 16,6 pró­sent, eða langt yfir lög­bundnu hámarki.

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að þegar Samherji kynnti sam­stæðu sína erlendis þá var Síld­ar­vinnslan kynnt sem upp­sjáv­ar­hluti hennar og myndir birtar af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta sýndu glæru­kynn­ingar sem voru hluti af þeim gögnum sem Wikileaks birti vegna Sam­herj­a­máls­ins.

Telur sig ekki vanhæfan

Þór­hildur Sunna spurði Kristján Þór, í ljósi þess að lík­lega væri Samherji eitt af tveimur fyr­ir­tækjum sem gæti verið nálægt því að vera yfir kvóta­þak­inu, og í ljósi þess að það gæti komið í hlut ráð­herra að taka ákvörðun um hvort að leggja eigi til að lækka þakið, hvernig hann myndi þá standa að hags­muna­mati sínu gagn­vart Samherja.

Kristján Þór sagði að við vinnu verk­efna­stjórar um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni, sem skipuð var í mars í fyrra, hefði Skatt­ur­inn lagt mat á það hvort ein­hvern fyr­ir­tæki hefðu farið yfir kvóta­þak. Nið­ur­staða þeirrar ákvörð­unar hafi verið að ekk­ert fyr­ir­tæki væri yfir þak­inu.

„Það er ekki á valdsviði ráð­herra, og ég vona að það verði aldrei, að taka ákvörðun um hlut­deild ein­hvers fyr­ir­tækis,“ sagði Kristján Þór. Það væri Fiski­stofu að ákveða fram­fylgd laga sem lög­gjaf­inn setur. Þar af leið­andi væri það ein­ungis Alþingi sem geti breytt þeirri reglu.

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði hann um hæfi til þess að taka þátt í með­ferð und­ir­bún­ings frum­varps um úthlutun mak­ríl­kvóta í fyrra­vor, og atkvæða­greiðslu um málið á þing­inu þegar það var sam­þykkt, í ljósi þess að Samherji átti þar undir gríð­ar­lega mikla fjár­hags­lega hags­muni, enda fyr­ir­tæki innan sam­stæðu Samherja/Síld­ar­vinnsl­unnar mjög umsvifa­mikil í mak­ríl­veiðum.

Kristján Þór sagði að hæf­is­reglur stjórn­sýsl­unnar giltu ein­fald­lega ekki um slíka aðkomu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár