Kristján Þór segist engra hagsmuna hafa að gæta gagnvart Samherja

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra segir að einu tengsl sín við Samherja í dag sé vin­átta hans við Þorstein Má Bald­vins­son, sem steig tíma­bundið úr stóli for­stjóra Samherja í síð­asta mán­uði.

„Ég hef engra hags­muna að gæta gagn­vart þessu fyr­ir­tæki,“ sagði Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra á opnum fundi í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í morgun þar sem frum­kvæð­is­at­hugun á hæfi hans til sinna sínum störfum vegna tengsla sinna við Samherja.

Kristján Þór sagði að einu tengsl sín við fyr­ir­tækið nú væri vin­átta við Þorstein Má Bald­vins­son, fyrr­ver­andi for­stjóra Samherja og einn aðal­eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins, sem steig tíma­bundið til hliðar úr for­stjóra­stóli eftir opin­berum fjöl­miðla á athæfi Samherja í Namibíu, þar sem fyr­ir­tækið er grunað um að hafa greitt mútur fyrir aðgang að fisk­veiði­kvóta. Samherji er einnig grun­aður um að hafa stundað pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu. Málefni fyr­ir­tæk­is­ins eru til rann­sóknar í Namibíu, Angóla, Í Noregi og á Íslandi.

Kristján Þór sagði að það gæti verið erfitt að greina á milli þess hvenær maður er að tala við vin og hvenær maður er að tala við for­svars­mann fyr­ir­tækis. Þetta væri einn og sami mað­ur­inn. Hann teldi það hluta af minni athafna­skyldu sem ráð­herra að koma sjón­ar­miðum á fram­færi þegar mál koma upp sem gætu skaðað orð­spor íslensks sjáv­ar­út­vegs. Á þeim for­sendum hefði hann sett sig í sam­band sím­leiðis við Þorstein Má þegar mál­efni Samherja komust í hámæli. Það sím­tal, þar sem Kristján Þór spurði Þorstein Má meðal ann­ars hvernig hann hefði það, hefur verið harð­lega gagn­rýnt af mörgum, meðal ann­ars af þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar.

„Eðli máls­ins sam­kvæmt hefur þetta verið ofar­lega í huga mér, vegna minna fyrri starfa,“ sagði Kristján Þór á fund­inum í morgun. Hann rifj­aði upp að hann hefði sýnt frum­kvæði af því að birta upp­lýs­ingar um tengsl sín við Samherja þegar hann tók við emb­ætti ráð­herra í des­em­ber 2017, en Kristján Þór var meðal ann­ars stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins um tíma fyrir tæpum tveimur ára­tugum.

„Almenna hæfið, í mínum huga, það er eng­inn vafi um það,“ sagði Kristján Þór þegar Andrés Ingi Jónsson, nefnd­ar­maður í nefnd­inni, spurði hann um hæfi hans til að taka ákvarð­anir um sjáv­ar­út­veg í heild sinni. Hann teldi sig vera hæfan til að taka slíkar ákvarð­anir.

Frumkvæðisathugun á hæfi

For­saga máls­ins er sú að þrír þing­menn sam­þykktu á fundi stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar þann 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn að hefja frum­kvæð­is­at­hugun á því hvernig Krist­ján Þór myndi láta meta hæfi sitt vegna tengsla sinna við útgerð­ar­fyr­ir­tækið Sam­herja og hvort til­efni hefði verið fyrir slíkri athugun í ráð­herra­tíð hans.

[adspot][Þing­menn­irnir sem sam­þykktu að hefja athug­un­ina eru Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, for­maður nefnd­ar­inn­ar, Guð­mundur Andri Thors­son og Andrés Ingi Jóns­son sem nú er óháður þing­mað­ur. Þing­menn meiri­hlut­ans í nefnd­inni gagn­rýndu aftur á móti til­lög­una og töldu rétt­ast að ráð­herra væri fyrst gefið færi á að útskýra mál sitt.

Fram kom í fréttum um málið að Þór­hildur Sunna yrði ekki með fram­sögu máls­ins heldur Líneik Anna. Þór­hildur Sunna sagði í sam­tali við RÚV í síð­asta mán­uði að það hefði ekki verið vilji til þess hjá meiri­hluta nefnd­ar­innar að hún hefði fram­sögu um mál­ið. „Þeim finnst ég hafa gert upp hug minn varð­andi það hvort ráð­herr­ann sé van­hæf­ur.“ Hún lagði til að Andrés yrði fram­sögu­maður en á það féllst meiri­hlut­inn heldur ekki.

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið svar­aði spurn­ingum stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar fyrr í þess­ari viku. Þór­hildur Sunna sagði í sam­tali við RÚV að þau svör væru ekki nægj­an­leg. Kristján Þór var því boð­aður á fund nefnd­ar­innar til að gefa nefnd­ar­mönnum frek­ari upp­lýs­ingar um hæfi sitt í málum sem tengj­ast Samherja.

Þegar vikið sæti í ákveðnum málum

Greint var frá því 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn að Kristján Þór hefði ákveðið á grund­velli stjórn­sýslu­laga að víkja sæti við með­ferð og töku ákvarð­ana í fjórum stjórn­sýslu­kærum tengdum Sam­herja. Þess í stað var sam­þykkt á rík­is­stjórn­ar­fundi að Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, myndi fara með mál­in.

Kristján Þór sagði á fund­inum í morgun að ástæða þess að hann hefði óskað þess að víkja sæti við kæru­með­ferð þeirra mála sem greint hafi verið frá væri ekki síst sá að það skipti ekki síst máli að sá sem tekur ákvörð­unin lítur á sitt hæfi heldur líka hvernig hún horfir við borg­ur­unum.

Hann muni áfram meta hæfi sitt í hverju til­viki ef mál tengd Samherja koma aftur upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár