„Ekki lengur í boði að vera hlutlaus hluthafi“

Hagfræðingur og stjórnar­maður í Lífeyris­sjóði verzlunarmanna segir vaxandi loftslags­áhættu auka þörfina á að lífeyris­sjóðir og aðrir stofnana­fjárfestar geti beitt hluthafa­valdi sínu í meira mæli.

Guðrún Johnsen, hagfræðingur.
Guðrún Johnsen, hag­fræð­ingur. Mynd: Arion banki

Í ljósi vaxandi loftslags­áhættu þarf að styrkja verulega innviði stofnana­fjárfesta og langíma­fjárfesta, svo sem lífeyris­sjóða, til að þeir geti beitt hluthafa­valdi sínu, ef þeir eiga að geta staðið við eigin langtíma­skuld­bindingar. Þetta skrifar Guðrún Johnsen, hagfræðingur og stjórnar­maður í Lífeyris­sjóði verzlunarmanna í jólablaði Vísbendingar, sem kom út síðasta föstudag.

Í grein sinni fer Guðrún yfir áhrif langtíma­fjárfesta sem vilja sporna gegn hlýnun jarðar og hvort það sé æskilegra fyrir þá að fjárfesta einungis í svokölluðum grænum fyrir­tækjum – sem draga úr hlýnun loftslags – eða með því að reyna að breyta rekstri fyrir­tækja í þeirra eigu.

Samkvæmt henni hefur mikill félags­legur og stjórnmála­legur þrýstingur verið á langtíma­fjárfesta að stokka upp verð­bréfasöfnin sín og færa fjármagn frá fyrir­tækjum sem stuðla að hlýnun loftslags – eða svokölluðum brúnum fyrir­tækjum – yfir til grænna fyrir­tækja. Þó þetta hljómi vel bendir Guðrún þó á að það sé óvíst hvaða áhrif slík uppstokkun hafi á óumhverfisvænu fyrir­tækin, þar sem nýir fjár­festar koma í stað þeirra sem fyrir voru.

Með minni fjár­festingum í brúnum fyrir­tækjum ætti þó fjármagns­kostnaður þeirra að hækka, sem gæti leitt til þrýstings á að þau breyti rekstri sínum. Guðrún segir þó mikið þurfa til þess að það gerðist að einhverju marki, en samkvæmt henni þyrftu 80 prósent fjármagns í heiminum að vera í grænum fyrir­tækjum til að fjármagns­kostnaður brúnna fyrir­tækja myndi hækka um eitt prósent.

Þá vitnar Guðrún í erlenda rannsókn um samfélagsleg áhrif fjárfesta, en samkvæmt henni væri betra fyrir þá að halda í og jafnvel auka við fjár­festingar í brúnum iðnaði og beita réttindum sínum sem hluthafar til að hafa áhrif á fjár­festingar­stefnu fyrir­tækjanna í gegnum stjórnar­hætti félagslins heldur en að selja þau.

Þar sem auðvelt er að finna aðra kaupendur hluta­bréfa, jafnvel þótt þau séu í mengandi fyrir­tækjum, segir Guðrún að fjár­festarnir hafi meiri áhrif ef þau vera og stýra, heldur en að „kjósa með fótunum“ og selja sinn hlut í þeim. Til þess að það geti gerst þyrftu innviðir lífeyris­sjóða og annarra stofnana­fjárfesta að vera styrktir, svo þeir geti staðið við skuld­bindingar sínar til langs tíma. „Það er ekki lengur í boði að vera hlutlaus hluthafi,“ bætti hún við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár