Megi ekki sýna „rentusókn innlendra fákeppnismógúla“ miskunn

Prófessor í viðskipta­fræði­deild við Háskóla Íslands segir skort á aðhaldi gagnvart íslenskum fyrir­tækjum sem starfa á fákeppnis­markaði myndi skila „enda­lausum sjálfs­mörkum“ í sókn okkar að betri lífs­kjörum.

Gylfi Magnússon, prófessor í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands Mynd: Kristinn Ingvarsson

Mikil sóknar­færi fyrir lífskjör lands­manna liggja annars vegar í hertri samkeppni og hins vegar aukinni samtengingu landsins við erlenda markaði. Aftur á móti gæti lítið aðhald gagnvart innlendum fákeppnis­fyrirtækjum gæti dregið úr slíkum sóknar­færum. Þetta skrifar Gylfi Magnússon, prófessor í viðskipta­fræði­deild Háskóla Íslands, í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Samkvæmt Gylfa tekst íslenskum útflutnings­fyrirtækjum oft nokkuð vel í alþjóðlegri samkeppni og fram­leiðni þeirra virðist vera ágæt, þótt þau komi frá litlu landi. Hins vegar segir hann að þau fyrirtæki sem einkum sinna innan­lands­markaði líða illilega fyrir smæð hans hérlendis og að sú smæð skili ekki bara smáum fyrir­tækjum, heldur fáum fyrir­tækjum á hverjum markaði.

Rík í útlöndum og blönk í eigin landi

Að mati hans leiðir lítill fjöldi fyrir­tækja á innan­lands­markaði til daufari samkeppni, auk þess sem kunningja­samfélagið dragi svo enn tennurnar úr henni. Vegna þess nýtast þau háu laun sem eru greidd hér á landi ekki vel innanlands, þar sem verðlagið er hærra vegna lítillar samkeppni á milli fyrir­tækja.

„Hér býr sem sé þjóð sem er moldrík í öðrum löndum en skítblönk í eigin landi, ef maður leyfir sér að ýkja svolítið,“ bætir Gylfi við og segir nánast allt vera dýrt fyrir neytendur hérlendis, fyrir utan þá þjónustu sem framleidd er af hinu opinbera.

Aðhald og tenging við stærri markaði mikilvægt

Þrátt fyrir þessa smæð innlenda markaðarins segir Gylfi að ýmis sóknar­færi séu til staðar fyrir íslenska neytendur, sem felist annars vegar í aukinni samkeppni á innan­lands­markaði og hins vegar í meiri samtengingu hans við nágranna­lönd.

Gylfi segir það vera sérstak­lega mikilvægt að spyrna gegn öllum tilraunum fyrir­tækja til að veikja og sveigja starfsemi eftirlits­stofnana að þeirra óskum. Slíkar tilraunir komi oft fram hér á landi, en samkvæmt honum eru nánast linnulausar tilraunir hagmuna­samtaka til að veikja samkeppnis­lögin og eftirlit með þeim skýrasta birtingar­mynd þess.

Einnig sé opin og gagnsæ umræða um fyrir­tækin mikilvæg, þar sem tilraunir til að veikja innlenda samkeppni og eftirlit með henni þoli alla jafna illa dagsljós. Að mati Gylfa skipta fjöl­miðlar hér lykilmáli og berjast því fyrirtæki gjarnan fyrir yfirráðum yfir þeim. Hann segir þennan áhuga fyrirtæki á að styrkja fjölmiðla ekki vera góðgerðar­starfsemi, heldur fjár­festing í áhrifum.

Fjölmörg sóknarfæri

Samkvæmt Gylfa er EES-samningurinn önnur mikilvæg vörn gegn fákeppnis­tilburðum innlendra fyrir­tækja, sem gerir verulegar kröfur til innlends reglu­verks og eftirlits­stofnana. Þar að auki njóti landsmenn góðs af harðri stefnu­mótun framkvæmda­stjórnar ESB í samkeppnis­málum, segir hann.

Þá nefnir hann að helsta sóknar­færi íslenskra neytenda liggi í frekari tengingu við EES-markaðinn, en með henni yrði hægt að koma á fót enn virkari samkeppni hérlendis. Með því yrði ekki aðeins stuðlað að lægra vöruverði, heldur aukinni vald­dreifingu í samfélaginu.

„Sóknar­færin eru fjölmörg, bæði á alþjóða­mörkuðum og innanlands,“ segir Gylfi. „Það má hins vegar ekki sýna rentusókn innlendra fákeppnis­mógúla neina miskunn. Það skilar bara enda­lausum sjálfs­mörkum í lífskjara­sókninni.”

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár