Ásthildur nýr skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur skipað Ásthildi Knúts­dóttur í emb­ætti skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu lýð­heilsu og for­varna í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu.

Ásthildur Knútsdóttir
Ást­hildur Knúts­dóttir Mynd: Stjórnarráðið

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur skipað Ásthildi Knúts­dóttur í emb­ætti skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu lýð­heilsu og for­varna í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu til næstu fimm ára.

Þetta kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins kemur fram að ráð­herra hafi skipað Ásthildi að und­an­gengnu mati ráð­gef­andi nefndar sem metur hæfni umsækj­enda. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar hafi verið sú að Ást­hildur væri mjög vel hæf til að gegna starf­inu.

„Ást­hildur er hjúkr­un­ar­fræð­ingur að mennt með MBA í stjórnun frá Uni­versity of St. Thomas í Minn­ea­polis. Hún hefur starfað sem settur skrif­stofu­stjóri í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu frá 1. apríl 2019, starfað um ára­bil sem sér­fræð­ingur í sama ráðu­neyti og einnig gegnt stöðu sem stað­geng­ill skrif­stofu­stjóra. Á árunum 2003 til 2006 var Ást­hildur deild­ar­full­trúi heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hjá Fasta­nefnd Íslands í Genf. Þar hafði hún m.a. umsjón með mál­efnum Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar vegna setu Íslands í fram­kvæmda­stjórn stofn­un­ar­innar,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Þá kom fram í mati nefnd­ar­innar sem mat hæfni umsækj­enda að Ást­hildur hefði starfað lengi innan Stjórn­ar­ráðs­ins og byggi því að góðri þekk­ingu og reynslu á sviði opin­berrar stjórn­sýslu. Hún hefði einnig mjög langa starfs­reynslu á heil­brigð­is­sviði og ára­langa reynslu af alþjóð­legu sam­starfi á sviði heil­brigð­is­mála.

Í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar segir að Ást­hildur hafi mikla yfir­sýn og þekk­ingu á sviði lýð­heilsu, for­varna og heil­brigð­is­mála almennt, bæði hvað varðar stefnu­mótun og fag­lega grein­ingu. Þess er einnig getið sér­stak­lega að hún hafi að sögn umsagn­ar­að­ila óvenju­lega góða hæfni í mann­legum sam­skiptum, láti vel að leiða saman ólík sjón­ar­mið og ná sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár