Gamall ostur er afbragðskostur

Allir sem á annað borð þekkja til Dana vita að þeir eru miklir matmenn. Kjöt­bollur og purusteik með rauðkáli, steikt rauð­spretta, hakkebøf, smurbrauð og pylsur, ásamt bjór og snafs. Danskast af öllu dönsku er stundum sagt. Í þessari upptalningu vantar eitt: ost. Danir eru miklar ostaætur, eins og reyndar margar aðrar þjóðir, og það þykir óburðug verslun sem hefur ekki að minnsta kosti 30 mismun­andi tegundir af osti á boðstólum.

Eitt er það sem greinir danska ostinn frá ostum í mörgum öðrum löndum. Tvennt væri kannski réttara að segja: lyktin og bragðið. Margir sem ekki þekkja til fýla grön þegar umbúðir um danskan ostbita eru opnaðar. Osta­lyktinni sem þá sleppur út er iðulega líkt við óhreina sokka, aðrir kalla þetta einfald­lega fótalykt. Osta­aðdáendur lygna hins vegar aftur augunum þegar ilmurinn berst að vitum og fá vatn í munninn við tilhugsunina um að bragða á góðgætinu. Því kröftugri ilmur því betra bragð segja osta­unnendur.

Feitur ostur eða magur?


Danir hafa ekki frekar en margar aðrar þjóðir farið var­hluta af hinni svoköll­uðu heilsu­far­sum­ræðu sem hefur verið áber­andi hin síð­ari ár. Sú umræða teng­ist þeirri stað­reynd að sífellt fleira fólk um víða ver­öld, einkum þó á Vest­ur­löndum, er alltof þungt. Þarna er danska þjóðin ekki und­an­skilin. Ástæður þessa aukna með­al­þunga eru ugg­laust margar, sem kannski verður best lýst með tveimur orðum: breyttur lífs­stíll. Þetta hefur gerst þrátt fyrir aukið úrval fitu­snauð­ari mat­væla og ráð­gjöf sér­fræð­inga. Osturinn er þarna ekki und­an­skil­inn og danskir osta­fram­leið­endur hafa á und­an­förnum árum sett á mark­að­inn margs konar fitu­minni osta en áður voru í boði.

Léttmjólk og létt hitt og þetta en feitur ostur


Mjólk­ur­neysla Dana hefur breyst mikið á síð­ustu árum. Sala á létt­mjólk og und­an­rennu hefur auk­ist mikið en dreg­ist saman á hinni hefð­bundnu nýmjólk sem Danir kalla sødmælk. Sömu sögu er að segja um jógúrt og skyldar vörur. Skyrið, sem fram­leitt er að íslenskri fyr­ir­mynd, nýtur æ meiri vin­sælda hjá Dönum sem segja aðspurðir að það sé bæði gott og hollt og nefna lágt fitu­inni­hald.

Þessi áhugi og aukin neysla á fitu­snauðum matvælum nær hinsvegar ekki til ostsins. Nær allar tilraunir osta­fram­leiðenda, og þær eru margar, til að fá Dani til að kaupa fitu­snauðan ost hafa misheppnast. Hver létt-tegundin af annarri hefur litið dagsins ljós á undan­förnum árum með tilheyrandi kynningar­herferð í fjöl­miðlum. En sama hvað reynt er, Danir fúlsa við fituminni ostinum en smella áfram þeim feita ofan á rúgbrauðið og súrdeigs­bollurnar. Allt tal um næringar­gildi, of mörg kíló og kólesteról, láta þeir sem vind um eyru þjóta þegar osturinn er annars vegar. Og því eldri og sterkari þeim mun betri og vinsælli meðal Dana.

Gamli osturinn er hollastur


Í nýrri rann­sókn á vegum Hafn­ar­há­skóla koma fram nið­ur­stöður sem danskir ostaunn­endur kunna lík­lega vel að meta. Rann­sóknin leiddi í ljós að gam­all cheddar ostur (lát­inn lag­er­ast í 24 mán­uði) virð­ist mun holl­ari en ungur sams­konar ostur. Vís­inda­menn­irnir segja að full ástæða sé til að halda að sama gildi um ann­ars konar osta. Það er sem­sagt tím­inn sem ost­ur­inn er lát­inn bíða áður en hann er seldur sem öllu skiptir.

Rannsókn dönsku vísinda­mannanna beindist ekki að saman­burði á mögrum og feitum osti en á síðustu árum hafa verið gerðar margar rann­sóknir, þar á meðal ein dönsk, sem sýna fram á að feitur ostur er miklu hollari en áður var talið. Danskir osta­unnendur geta því glaðst þótt líklega gildi hið sígilda í þessum efnum eins og öðrum: allt er best í hófi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár