Segir landamærum Evrópu ógnað og veitir hernum aukin völd í Ungverjalandi

Utan­ríkis­ráðherrar frá Póllandi, Ungverja­landi, Tékklandi og Slóvaíku hittast nú á fundi í Prag vegna flóttamanna­krísunnar. Ríkin fjögur eru öll mótfallin tillögum Þjóðverja og Frakka um að öll ríki ESB uppfylli einhvern lágmarks­kvóta í fjölda fólks sem tekið verður á móti.

„Þau eru að valta yfir okkur,“ sagði Viktor Orban, forsætis­ráðherra Ungverja­lands um málið í dag, skömmu áður en ungverska þingið ákvað að veita hernum aukið vald. „Þau eru ekki bara að banka á dyrnar heldur brjóta þær niður ofan á okkur. Landa­mærum okkar er ógnað. Ungverja­landi er ógnað sem og allir Evrópu.“

Nýju lögin sem samþykkt voru heimila hermönnum að nota gúmmí­kúlur, táragas og neta­byssur á flótta­menn við landamæri ríkisins. Ungverjar hafa opnað landamæri sín við Serbíu á nýjan leik eftir lokun í síðustu viku sem varð til þess að mikill straumur fólks fór til Króatíu í staðinn. Tæplega 30 þúsund manns hafa komið til Króatíu.

Orban hvatti til samstöðu meðal Evrópu­ríkja um þessi mál, en hann hefur verið harðlega gagn­rýndur fyrir afstöðu sína og ríkisins í málinu. Í dag er þessi fundur utan­ríkis­ráðherra Austur-Evrópu­ríkja, en þar með er funda­höldum ekki lokið. Á morgun munu innan­ríkis- og dómsmála­ráðherrar Evrópu­sambands­ríkjanna funda í Brussel til að reyna að komast að niður­stöðu um það hversu mörgum flótta­mönnum hvert ríki taki á móti. Á miðvikudag mun leiðtogar Evrópu­ríkjanna svo koma saman til sérstaks fundar vegna málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár