Starfsemi United Silicon stöðvuð

„Umhverfis­stofnun hefur tekið ákvörðun um að stöðva starfsemi Sameinaðs Sílikons hf., sbr. 3. tl. 1. mgr. 26. gr. laga, nr. 7/1998, um hollustu­hætti og mengunar­varnir. Fyrir­tækinu hefur verið kynnt sú ákvörðun með bréfi. Óheimilt er að endurræsa ofn verksmiðjunnar nema með skriflegri heimild frá Umhverfis­stofnun að loknum fullnægjandi endur­bótum og ítarlegu mati á þeim.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfis­stofnun.

Í bréfi stofnunarinnar vegna þessa, segir meðal annars að mengun frá starfseminni hafi verið óviðunandi og ekki hafi tekist að koma í veg fyrir hana.

Óskað hefur verið eftir greiðslu­stöðvun kísil­verksmiðjunnar, eins og fram hefur komið. United Sil­icon rekur kís­il­málm­verk­smiðju í Helgu­vík. Félagið óskaði eftir greiðslu­stöðvun 14. ágúst síð­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­leikar í rekstri kís­il­málm­verk­smiðj­unni sem hóf fram­leiðslu í nóv­em­ber 2016, og rekja má til síend­ur­tek­inna bil­ana í bún­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Nýfall­inn gerð­ar­dómur í deilu félags­ins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félags­ins. Sam­kvæmt honum þarf United Sil­icon að greiða ÍAV um einn millj­arð króna.

Á meðal hlut­hafa og lán­veit­enda þess eru Arion banki og íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Í afkomutil­kynn­ingu Arion banka segir að ljóst sé að félagið þarfn­ist auk­ins fjár­magns svo bæta megi búnað og aðstöðu svo verk­smiðjan stand­ist fram­leiðslu­mark­mið og gæða­kröfur sem sett hafa ver­ið. Arion banki hefur lánað átta milljarða til verk­efnisins.

Því er ljóst að núver­andi hlut­hafar United Sil­icon hafa að öllum lík­indum tapað eign­ar­hlut sínum í félag­inu, lán­veit­endur þess munu þurfa að gefa eftir hluta af kröfum sínum og endur­skipulagning fara fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár