Selfie mynd með ungfrú Líbanon og Ísrael dregur dilk á eftir á sér

Selfie mynd sem fegurðar­drottning frá Ísrael, Doron Matalon, birti af sér á Instagram með ungfrú Líbanon, Saly Greige, hefur dregið dilk á eftir sér og rétt stjórn­völd í Líbanon til reiði. Hafa ráðamenn kallað eftir því að Greige verði svipt titlinum, en stjórnmála­samband Ísraels og Líbanon er nánast ekkert og vantraust mikið eftir djúp­stæðar deilur og átök áratugum saman.

Matalon og Greige eru báðar að taka þátt í fegurðar­samkeppninni ungfrú heimi sem fer fram í Miami í Banda­ríkjunum 25. janúar næst­komandi. Greige hefur afsakað sig, samkvæmt frásögn Business Insider, að hún hafi reynt eftir fremsta megni að vera ekki með ungfrú Ísrael á mynd. En þegar hún hafi verið að ræða við fegurðar­drottningar frá Slóveníu og Japan hafi Matalon stokkið til og tekið mynd. „Hún dreifði myndinni svo á hennar samfélags­miðlum,“ segir Greige í yfir­lýsingu.

Síðustu blóðugu átök á milli Ísraels og Líbanon voru árið 2006.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár