Stýrivextir í Svíþjóð ekki verið hækkaðir jafn skarpt í 30 ár

Svíar vöknuðu við þau tíðindi í morgun að stýri­vextir eru komnir í 1,75 prósent. Seðla­bankinn hækkaði þá um 1 prósentu­stig í morgun.

Sænski seðla­bankinn, Riksbanken, hækkaði í morgun stýri­vexti um 1 prósentu­stig. Vextirnir eru nú 1,75 prósent. Þetta er skarpasta hækkun stýri­vaxta í landinu í tæplega þrjátíu ár. Frekari hækkana er að vænta á næstunni.

Í tilkynningu frá bankanum í morgun sagði að aðgerðirnar væru nauðsynlegar til að ná verð­bólgunni niður. Hún hafi hækkað ört undan­farið, bæði innan Svíþjóðar sem og víða annars staðar í heiminum.

Sænski seðla­bankinn hækkaði síðast stýri­vexti sína í júní. Sú hækkun nam 0,50 prósentu­stigum og var hún sú mesta í 22 ár. Hækkunin í dag er sú mesta frá árinu 1993 er verðbólgu­markmið voru sett í fyrsta sinn.

Samkvæmt spám bankans þarf að halda áfram að hækka vextina næstu sex mánuði til að ná markmiðum. Sérfræðingar sem sænska ríkis­útvarpið ræðir við spá því að stýri­vextirnir verði komnir i 3,5 prósent næsta sumar.

Ákvörðun seðla­bankans hefur komið sérfræðingum á óvart. Í frétt Dagens Nyheter segir að níu manna sérfræðingaráð blaðsins hafi búist við 0,5 prósent hækkun vaxta.

Í frétt blaðsins eru raktar helstu skýringar á aukinni verðbólgu. Bent er á ójafnvægi í efnahags­lífinu sem myndaðist í kjölfar heims­faraldursins. Eftir­spurn eftir vörum jókst hratt en tafir voru á framleiðslu­hliðinni.

Þá hafi innrás Rússa í Úkraínu og stríðið sem þar hefur geisað frá því í febrúar haft þær afleiðingar að vörur hafa hækkað enn meira í Evrópu en þær hefðu annars gert. Það skýrist aftur mest af hækkun orkuverðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár