Furðar sig á ummælum um að „hugsanlega“ verði kosið í haust

Full­trúar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna skildu for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar sem svo að kosið yrði í októ­ber. Sigurður Ingi og Bjarni Bene­dikts­son segja við fjöl­miðla að „hugs­an­lega“ verði kosið, það „komi til greina“ en sé „háð ákveðnum fyr­ir­vörum“.

For­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar, þeir Sigurður Ingi Jóhanns­son og Bjarni Bene­dikts­son, tjáðu full­trúum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á fundi í stjórn­ar­ráð­inu í dag að þing­kosn­ingar yrðu haldnar í októ­ber. Þetta stað­festa Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, í sam­tali við Stundina. 

Á Mbl.is er haft eftir Sigurði Inga for­sæt­is­ráð­herra að „eft­ir því hvernig mál ganga fram gætu kosn­ing­ar orðið hugs­an­lega seinni hlut­ann í októ­ber.“ Þá segja for­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar í við­tali við frétta­stofu RÚV að „til greina komi að þing­kosn­ingar verði í seinni hluta októ­ber“ en að „það sé þó háð ákveðnum fyr­ir­vörum“. 

Katrín Jak­obs­dóttir furðar sig á þessu í sam­tali við Stundina. „Minn skiln­ingur var sá að til stæði að halda kosn­ingar í seinni hluta októ­ber, að þannig væri ein­fald­lega tímara­m­inn. Þeir kynntu fyrir okkur mála­skrá sem var allít­ar­leg. Ég hefði ennþá talið skyn­sam­leg­ast að kosn­ingar færu fram í vor, en auð­vitað er ágætt að reynt sé að eyða óvissu um þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár