Benedikt: Landsdómsmálið var „popúlismi“ og Bernie Sanders er „dæmigerður vinstri lýðskrumari“

Benedikt Jóhannesson, fyrr­verandi fjármála­ráðherra, fer mikinn í pistli sem birtist í Morgun­blaðinu í dag.

Benedikt Jóhannesson, fyrr­verandi fjármála­ráðherra, segir að stjórn­mála­maðurinn Bernie Sanders sé „dæmi­gerður vinstri lýðskrumari“. Þá gagnrýnir hann réttar­höldin gegn Geir H. Haarde, segir þau vera „eitt versta dæmið um misbeitingu popúlisma í íslenskri pólitík“ og vekur athygli á því að samflokksmenn Geirs hafi „nú leitt fimm af þeim sem stóðu að ákærunni á hendur honum í æðstu valda­stóla á Íslandi“. 

Þetta kemur fram í harðorðum pistli sem Benedikt birtir í Morgun­blaðinu í dag. Þar gerir hann popúlisma og lýðskrum að umtals­efni og setur í samhengi við stjórnmála­ástandið á Íslandi. Bendir hann t.d. á að „nánast allir flokkar hafa verið á móti málum í stjórnar­andstöðu en tryggja svo innleiðingu þeirra þegar þeir eru komnir í ríkis­stjórn eða öfugt“. 

Benedikt segir að popúlistanum finnist „ekkert að því að tala um að skattar skuli vera almennir á sama tíma og hann predikar að „góðar atvinnu­greinar“ eins og fjöl­miðlar eða ferða­þjónusta borgi lægri skatta en aðrir“. Vísar hann þar líklega til umræðu um skattaívilnanir fyrir fjölmiðla og þess að núverandi ríkis­stjórn hefur fallið frá áformum fyrri ríkis­stjórnar og hans sjálfs um að færa ferða­þjónustu upp í efra þrep virðis­auka­skattsins.

Þá segir Benedikt Lands­dómsmálið vera dæmi um popúlisma. Sem kunnugt er var Geir H. Haarde fyrr­verandi forsætis­ráðherra dæmdur í Landsdómi árið 2012 fyrir að hafa sýnt stórkostlegt gáleysi í störfum sínum sem forsætis­ráðherra í aðdrag­anda banka­hrunsins 2008.

Taldi rétturinn að með aðgerða­leysi sínu hefði Geir ekki aðeins brotið gegn formreglu í stjórnar­skrá heldur beinlínis vanrækt að marka pólitíska stefnu til að takast á við þann efnahags­vanda sem honum hlaut að vera ljós strax í febrúar 2008 og þannig draga úr því tjóni sem varð við hrun bankanna.

Nýlega úrskurðaði Mann­réttinda­dómstóll Evrópu um að engin mann­réttindi hefðu verið brotin í Lands­dómsmálinu. Fram kom í dómi MDE að ekkert benti til þess að dómarar við Landsdóm hefðu verið hlut­drægir í störfum sínum, sætt óeðli­legum þrýstingi eða haft óeðlileg tengsl við stjórn­málamenn. Þá hefði skipun dómstólsins ekki veirð á skjön við kröfur Mann­réttinda­sáttmála Evrópu um sjálf­stæðan og óvilhallan dómstól. 

Benedikt gerir bandaríska forseta­fram­bjóðandann Bernie Sanders að umtals­efni og segir hann eiga það sameiginlegt með Donald Trump að vera lýðskrumari. „Þver­stæðan er sú að stundum er málpípan hluti af hinum útvöldu, hópnum sem hún talar gegn. Menn sem segjast vera rödd guðs eru yfirleitt taldir galnir, en þeir sem segjast vera rödd fólksins, eins og Trump, tala oft með svipuðum hætti. Bernie Sanders og fylgis­mönnum hans fyndist eflaust afleitt að vera líkt við Trump, en Sanders er dæmi­gerður vinstri lýðskrumari,“ skrifar Benedikt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár