Stuðningsmenn NYCFC æfir út í eigendur liðsins vegna Lampard

Miklar vonir voru bundnar við að knattspyrnu­liðið New York City FC (NYCFC) yrði mikil lyftistöng fyrir bandarísku atvinnu­manna­deildina í fótbolta. Þegar tilkynnt var um stofnun liðsins í maí, sem er í sameiginlegri eigu þeirra sem eiga enska úrvals­deildar­liðið Manchester City og bandaríska hafnabolta­liðið New York Yankees, vonuðust margir eftir því að með tilkomu liðsins myndi hver stór­stjarnan á fætur annarri streyma til Banda­ríkjanna til að spila fótbolta.

Vonir bandarískra knattspyrnu­áhugamanna í New York tóku stökk þegar tilkynnt var um að liðið hefði tryggt sér starfs­krafta enska miðvallar­leik­mannsins Frank Lampard og spænska marka­hróksins David Villa. En nú eru farnar að renna tvær grímur á stuðnings­menn NYCFC, sérstak­lega eftir að tilkynnt var á dögunum að Frank Lampard muni klára tímabilið í ensku úrvals­deildinni með Englands­meisturum Manchester City. Frétta­vefmiðillinn Quartz greinir frá málinu.

Sviknir stuðningsmenn


Lampard hefur leikið fyrir Manchester City frá því í ágúst, en hann er að láni hjá lið­inu frá NYCFC, sem hann samdi við eftir að far­sælum ferli hans hjá enska úrvals­deild­ar­lið­inu Chelsea lauk við lok síð­asta tíma­bils. Láns­samn­ingur Lampard átti að renna út um ára­mótin, og reiknað var með að hann héldi til Banda­ríkj­anna eftir að láns­samn­ing­ur­inn rynni út. Nú er ljóst að Lampard kemur hvergi fyrr en tíma­bilið í ensku úrvals­deild­inni er lokið, sem þýðir að hann missir af helm­ing keppn­is­tíma­bils­ins í banda­rísku úrvals­deild­inni. Ákvörðun eig­enda NYCFC um að fram­lengja dvöl miðju­manns­ins hefur hleypt illu blóði í stuðn­ings­menn liðs­ins, og slegið tölu­vert á eft­ir­vænt­ingu þeirra eftir að nýtt tíma­bil hefj­ist.

Stuðnings­menn NYCFC eru alls ekki sáttir við að Lampard skili sér ekki til Banda­ríkjanna fyrr en eftir tímabilið í ensku úrvals­deildinni.

Stuðningsmenn NYCFC eru alls ekki sáttir við að Lampard skili sér ekki til Bandaríkjanna fyrr en eftir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni.
Stuðn­ings­menn NYCFC eru alls ekki sáttir við að Lampard skili sér ekki til Banda­ríkj­anna fyrr en eftir tíma­bilið í ensku úrvals­deild­inni.

Fjöldi stuðnings­manna NYCFC sem hefur fest kaup á ársmiða hjá liðinu, hefur krafist þess að fá miðana endur­greidda. Þá hefur knattspyrnu­liðið verið harðlega gagnrýnt á Facebook síðu NYCFC sem og Twitter.

Grant Wahl, blaða­maður hjá hinu virta Sports Illustrated íþrótta­tímariti, sagði að eigendur NYCFC gætu allt eins sett upp plaköt á víð og dreif um New York borg af Lampard, Ferran Soriano, stjórnar­formann Manchester City og Sheikh Mansour eiganda enska knattspyrnu­liðsins, að senda stuðnings­mönnum NYCFC fingurinn. Svo mikla óvirðingu hafi þeir í raun sýnt stuðnings­mönnum liðsins.

Þá hefur nýstofnaður stuðnings­manna­klúbbur NYCFC sömuleiðis fordæmt ákvörðunina og sagt að fyrir­huguð koma Lampard til New York hefði kveikt áhuga margra á liðinu. Í klúbbnum eru í dag um 1.500 meðlimir.


Viðbúið er að frestuð koma Lampard til borgarinnar sem aldrei sefur, mun sömuleiðis hafa fjárhagslegar afleiðingar. Íþrótta­vörubúðir eru byrjaðar að bjóða viðskipta­vinum sínum, sem keyptu treyjur með nafni Lampard, endur­greiðslu. Ákvörðunin mun sömuleiðis kynda undir tilfinningu margra að skærustu stjörnur bandarísku úrvals­deildarinnar vilji frekar vera einhvers staðar annars staðar. Ákvörðun eigenda NYCFC er að minnsta kosti túlkuð þannig að þeir telji Lampard, sem er 36 ára, of góðan leikmann til að senda til Banda­ríkjanna.

Var Lampard svo aldrei í eigu NYCFC?

Þá hefur málið tekið enn einn furðu­legan snúning til viðbótar. Þrátt fyrir að því hafi verið haldið fram í tilkynningu frá Manchester City að Lampard hafi verið lánaður til liðsins frá NYCFC, hefur komið á daginn að miðju­maðurinn skrifaði sjálfur undir stuttan samning við Englands­meistaranna. Tilkynningin um láns­samninginn hefur þar að auki verið fjarlægð af heimasíðu enska úrvals­deildar­liðsins. Því lítur allt út fyrir að Lampard hafi aldrei verið leikmaður NYCFC í raun, og því alls óvíst hvort stuðnings­menn liðsins muni nokkurn tímann sjá hann klæðast treyju bandaríska liðsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár