Króatía opnar landamærin við Serbíu á nýjan leik

Króatía hefur opnað landamæri sín við Serbíu á nýjan leik, þar sem um þúsundir flótta­manna hafa verið fastir í kulda og blautu veðri. Króatar höfðu reynt að takmarka för flótta­manna um helgina, þegar Ungverjar lokuðu suður­landamærum sínum og Slóvenar hertu einnig sínar reglur og takmörkuðu fjölda flótta­manna við 2.500 manns á dag. Enn eru margir strand við landamæri Króatíu og Slóveníu.

Flóttamanna­hjálp Sameinuðu þjóðanna hafði sagt ástandið í landamæra­bænum Berkasovo í Serbíu hræðilegt. Um tíu þúsund manns hefðu verið föst í Serbíu. Þar væru mörg lítil börn, fatlað fólk og veikt fólk. „Þetta er ekki staður fyrir fólk, þau geta ekki sofið, þau bara standa upprétt í leðjunni. Við verðum að finna aðra lausn,“ segir Melita Sunjic, talskona flóttamanna­hjálparinnar við BBC. „Þetta er eins og stórfljót af fólki, og ef þú stöðvar streymið þá flæðir einhvers staðar. Það er það sem er að gerast núna,“ hefur Guardian eftir henni.

Fólkið sem um ræðir er flest komið frá Grikk­landi til Makedóníu og Serbíu, þaðan sem það vill komast norðar í Evrópu, flestir til Austur­ríkis og Þýska­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár