Trump svarar ásökunum um kvenhatur með því að segja andlit Fiorina fallegt

Donald Trump, auðkýfingur og fram­bjóðandi í forvals­kosningum Repúblikana­flokksins til forseta­efnis flokksins, svaraði í kappræðum í gær ásökunum um kvenhatur með því að segja andlit Carly Fiorina, eina kven­fram­bjóðandans, vera fallegt og að hún sé falleg kona. Ummælin lét Trump falla eftir að stjórn­endur kapp­ræðanna rifjuðu upp viðtals hans við tímaritið Rolling Stone. Þar sagði Trump um mótframbjóðanda sinn Fiorina: „Lítið á þetta andlit. Myndi einhver kjósa það? Getur þú ímyndað þér að þetta sé andlit næsta forseta Banda­ríkjanna?“

Frá því að kosninga­barátta Trump hófst hefur hann ítrekað verið sakaður um kvenfyrirlitngu. Þegar Fiorina var spurð í gær um álit sitt á ummælum Trump, en hún er eini kven­maðurinn í hópi 16 fram­bjóðenda Repúblikana, sagðist hún telja að konur um öll Banda­ríkin hafi heyrt skýrt hvað Trump sagði. Með orðum sínum vakti Fiorina mikla hrifningu áhorfenda í sjónvarpssal, að því er segir í umfjöllun The Guardian um kapp­ræðurnar og sjá má í mynd­skeiðinu hér að ofan.

Í umfjöllun New York Times um kapp­ræðurnar segir að fram­bjóðendur hafi skipst á að skjóta á Trump, sem mælist lang­vinsælastur í skoðana­könnunum. Þar þykir Fiorina hafa tekist best til og sjá mátti að orð hennar fengu á Trump. Samkvæmt umfjöllun bandaríska blaðsins þá reyndu stjórn­endur kapp­ræðanna, sem voru á sjónvarps­stöðinni CNN, ítrekað að egna einum fram­bjóðanda gegn öðrum með spurningum sínum. Flestir brugðust þó við með því að beina spjótum sínum sérstak­lega að Trump.

Stjórn­endur CNN fóru um víðan völl og meðal málefna voru innflytjendamál, kjarnorku­samningurinn við Íran, hjónabönd samkyn­hneigðra og fjár­mögnun ríkisins á barneigna­orlofum. Í síðastnefnda mála­flokknum kepptust fram­bjóðendur við að vera sem harðast á móti, að því er The Guardian greinir frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár