Björn Ingi kemur Þórhalli miðli til varnar

„Þúsundir Íslendinga vita betur.“ Þórhallur Guðmundsson miðill var tekinn fyrir í Brestum. Átti í erfið­leikum með að ná sambandi við Þorbjörn Þórðarson. Spámiðill á leyni­upptöku.

Miðillinn
Mið­ill­inn Þór­hallur Guð­munds­son mið­ill átti í erf­ið­leikum með frétta­mann Stöðvar 2. Mynd: Stöð 2

„Það truflar mig ekkert þótt einhverjir telji lítið vit í dulrænum hæfi­leikum Þórhalls Guðmunds­sonar vinar míns. Þetta er frjálst og upplýst samfélag. Þúsundir Íslendinga vita hins vegar af eigin reynslu miklu betur en svo,“ skrifar Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi Pressunar, DV og þátta­stjórnandi á Stöð 2 á Facebook um þá útreið sem Þórhallur Guðmundsson miðill fékk í þættinum Brestum á Stöð 2 í gærkvöldi.

Tals­verðar umræður urðu á Facebook um samskipti miðlanna og þátta­stjórnanda Bresta. Fjölmargir tóku upp hanskann fyrir miðilinn en aðrir töldu þetta vera svik. Frétta­maðurinn Þorbjörn Þórðarson rak miðilinn hvað eftir annað á gat og ekkert samband náðist við andaheima. Þórhallur reyndi ítrekað að finna snertiflöt við látin ættmenni ,,Tobba“ en án árangurs. Frétta­maðurinn fékk síðan Sindra Guðjónsson, formann Vantrúar, til að lýsa aðferða­þræði miðilisins sem var afgreidd sem blekking. Sagði hann að blekkingarnar væru ekki alltaf með ráðnum hug. „En þetta eru alltaf svik,“ sagði Sindri. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár