Jón Óttar úr Namibíumálinu fór í túr á togara Síldarvinnslunnar

Jón Óttar Ólafsson, fyrr­verandi rannsóknar­lögreglu­maður og ráðgjafi útgerðar­félagsins Samherja, fór í túr sem háseti á togara Síldar­vinnslunnar nú í haust. Jón Óttar er einn af þeim aðilum sem er með réttar­stöðu sakbornings í rann­sókninni á Namibíu­málinu.

Fór í túr á Blæng
Fór í túr á Blæng Jón Óttar Ólafsson fór í túr á tog­ar­anum Blæng sem er í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar í sept­em­ber. Hann sést hér með Þor­steini Már Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þar sem skaða­bóta­mál útgerð­ar­innar gegn Seðla­banka Íslands var flutt fyrir ári síðan. Mynd: Heiða Helgadóttir

Jón Óttar Ólafsson, fyrr­verandi ráðgjafi Samherja í Namibíu, fór í túr með togaranum Blæng Nk sem er í eigu Síldar­vinnslunnar nú í september. Þetta stað­festir annar af skip­stjórum Blængs, Bjarni Ólafur Hjálmarsson.

Samherji er stærsti hluthafi Síldar­vinnslunnar sem skráð var á markað fyrr á árinu. Eignar­hlutur Samherja er tæplega 1/3 af hlutafénu. Síldar­vinnslan er því almennings­hlutafélag og eru lífeyris­sjóðir stórir í hluthafa­hópnum, meðal annars Gildi, Stapi og Lífeyris­sjóður verslunar­manna. 

Stjórnar­formaður Síldar­vinnslunnar er Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.

Um var að ræða síðasta túr sem Blængur fór í en togarinn landaði á Neskaups­stað þann 28. september síðastliðinn. 

„Hann kom einn túr um dag­inn bara.“
Bjarni Ólafur Hjálm­ars­son

Bjarni segir að Jón Óttar hafi farið í túr á togaranum fyrir nokkrum vikum. „Hann kom einn túr um daginn bara. Hann er ekki fastur nei heldur leysti bara …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár