Biður hagsmunasamtök að tjá sig ekki um verðhækkanir

Samkeppnis­eftirlitið brýnir fyrir forsvars­mönnum hagsmuna­samtaka að taka ekki þátt í umfjöllunum um hækkandi vöruverð, þar sem samtökin eiga að fara gætilega þegar kemur að umræðu sem hefur áhrif á verð­lagningu fyrir­tækja.

Forsvars­menn hvers konar hagsmuna­samtaka í atvinnu­lífinu eiga ekki að taka þátt í umfjöllun sem tengist verð­lagningu eða annarri markaðs­hegðun fyrir­tækja. Þetta segir Samkeppnis­eftirlitið í tilkynningu sem send var á fjölmiðla fyrr í dag.

Í tilkynningunni minntist stofnunin sérstak­lega á ummæli framkvæmda­stjóra Samtaka atvinnu­lífsins um að það væri mjög líklegt að yfir­standandi vöru­skortur á alþjóða­vísu myndi valda verð­hækkunum á einhverjum vöru­flokkum. Einnig voru talin upp ummæli frá framkvæmda­stjóra Samtaka verslunar og þjónustu og formanni Bænda­samtakanna um líklegar verð­hækkanir á næstunni.

Samkvæmt Samkeppnis­eftirlitinu verða samtök fyrir­tækja að fara afar gætilega þegar kemur að umræðu og fræðslu sem getur haft áhrif á markaðs­hegðun félags­manna sinna, líkt og kveðið er á í samkeppnis­lögum. Sérstak­lega sé brýnt að gætt sé að þessu þegar fákeppnis­markaðir eiga í hlut og efnahags­erfiðleikar steðja að.

„Á samkeppnis­markaði á hækkun á aðfanga­verði ekki að leiða sjálf­krafa til hækkunar á verði til neytenda,“ segir Samkeppnis­eftirlitið í tilkynningunni sinni. „Samkeppnislög gera ráð fyrir því að hvert og eitt fyrirtæki geri eigin ráðstafanir og taki sjálf­stæðar ákvarðanir til að bregðast við slíkum áskorunum á sínum eigin rekstrar­legu forsendum og án alls samráðs við keppinauta eða hvatningar frá hagsmuna­samtökum.“

Samkeppnis­eftirlitið beinir því einnig til neytenda að vera á varðbergi gagnvart verð­hækkunum framundan, en hægt sé að beina ábendingum um slíkt til Neytenda­samtakanna, verðlags­eftirlits ASÍ, eða Neytenda­stofu. Hægt er að lesa tilkynningu eftirlitsins í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár