Apple seldi 74,5 milljónir iPhone síma á þremur mánuðum

Apple seldi 74,5 milljónir iPhone síma á síðustu þremur mánuðum ársins í fyrra, og munaði þar ekki síst um mikla sölu fyrir jólin í desember. Þessi sala var langt umfram væntingar greinenda á markaði sem skilaði fyrir­tækinu metuppgjöri. Heildar­tekjur fyrir­tækisins á síðasta fjórðungi ársins voru 74,6 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur tæplega 9.700 milljörðum króna. Hagnaðurinn á fjórðungnum nam ríflega átján milljörðum Bandaríkja­dala, eða um 2.340 milljörðum króna.

Þetta þýðir að Apple seldi ríflega 827 þúsund iPhone síma á degi hverjum, að meðaltali, á síðustu þremur mánuðum ársins.

Apple seldi að meðaltali ríflega 827 þúsund síma á hverjum degi, síðustu þrjá mánuði ársins í fyrra. Salan náði hámarki í kringum jólin.

Apple seldi að meðaltali ríflega 827 þúsund síma á hverjum degi, síðustu þrjá mánuði ársins í fyrra. Salan náði hámarki í kringum jólin.
Apple seldi að með­al­tali ríf­lega 827 þús­und síma á hverjum degi, síð­ustu þrjá mán­uði árs­ins í fyrra. Salan náði hámarki í kringum jólin.

Í tilkynningu með uppgjöri félagsins fyrir þessa þrjá mikilvægu mánuði í starfsemi félgasins er haft eftir Tim Cook, forstjóra Apple, að eftir­spurnin eftir iPhone 6 símum Apple væri gríðar­lega mikil, og þessi mikla sala á tækjum á síðustu mánuðum ársins væri til marks um það.

Apple hafði sjálft gefið út í rekstrá­ætlunum að heildar­tekjur á síðustu þremur mánuðum ársins gætu orðið á biliu 52 til 55 milljarðar Bandaríkja­dala, samkvæmt umfjöllun Inc.

Apple er nú verð­mætasta hluta­félag í heimi, en markaðs­virði þess nemur nú um 651 milljarði Bandaríkja­dala, en markaðs­virði félagsins jókst um næstum 50 prósent í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár