Trúarbrögð að vera á móti sæstreng

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra segir að sæstrengur sé ekki á dagskrá þessarar ríkis­stjórnar. Engin ný ákvörðun hafi verið tekin en hún bendir þó á að forsendur geti breyst og fráleitt að útiloka um alla framtíð að þetta gæti orðið skynsamlegt.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, segir að það „virðast vera orðin einhver trúar­brögð“ að vera á móti sæstreng, svo heiftar­lega að það sé umsvifa­laust gert grunsamlegt ef einhver segir að það sé sjálfsagt að skoða málin. Þetta kemur fram í stöðu­uppfærslu á Facebook í dag.

„Ég tek eftir því að menn hlaupa upp til handa og fóta, telja sig geta sagt „hah, hvað sagði ég, hún berst fyrir streng!”,“ skrifar hún.

Ástæðan fyrir því að hún tjáir sig um málið er að hún var í viðtali á Sprengis­andi á Bylgjunni í gær, sem og í Víglínunni á Stöð 2, og telur hún að orð hennar þar hafi ekki falið í sér neina stefnu­breytingu hjá stjórn­völdum. Hún vísar í frétt Viljans um málið þar sem hún segir að ranglega hafi verið sett í fyrirsögn að hún hafi í viðtalinu boðað könnun á fýsileika sæstrengs. Hún segist ekki hafa boðað neitt slíkt.

„Heldur svaraði spurningu Heimis Más almennt og sagði einfald­lega að ég gerði enga athugasemd við að kannað væri hvort kannski einhvern tímann væri sniðugt að selja raforku til útlanda. Rétt áður sagði ég það sama á Sprengis­andi og að í þessu hagsmuna­mati yrði að sjálfsögðu að taka með í myndina þá verðmæta­sköpun sem getur orðið til með því að nýta orkuna hér á landi, störfin, áhrif á byggð o.s.frv. Þetta hef ég oft sagt,“ skrifar hún.

Forsendur geta breyst – Fráleitt að útiloka þetta um alla framtíð

Þá bendir ráðherrann á að síðast þegar þetta hafi verið kannað hafi niður­staðan verið sú að lagning sæstrengs væri fremur langsótt og myndi ekki borga sig á markaðs­legum grund­velli. „Forsendur geta breyst og fráleitt að útiloka um alla framtíð að þetta gæti orðið skynsamlegt. Ríkis­stjórn Davíðs Oddssonar taldi þetta áhuga­verðan möguleika á sínum tíma en það virðast vera orðin einhver trúar­brögð að vera á móti þessu, svo heiftar­lega að það er umsvifa­laust gert grunsamlegt ef einhver segir að það sé sjálfsagt að skoða þetta. Hvort hugsanlega kannski sé eitthvað í þessu fyrir Ísland, einhvern tímann.“

Hún segir að sæstrengur sé ekki á dagskrá þessarar ríkis­stjórnar. Engin ný ákvörðun hafi verið tekin. Alþingi þurfi að taka ákvörðun um að hefja slíka framkvæmd. Hún segist sjálf hafa lagt til þær breytingar.

„Menn geta skammast í mér fyrir að loka ekki dyrum til framtíðar, fyrir að gera ekki athugasemd við að fá frekari upplýsingar fram í veröld sem hreyfist mjög hratt. Það verður þá að hafa það, ég mun ekki breyta þeirri nálgun minni á framtíð Íslands,“ skrifar Þórdís Kolbrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár