LinkedIn greiðir notendum skaðabætur fyrir að hafa sent of marga tölvupósta

Tengsla­vefurinn LinkedIn hefur samþykkt að greiða notendum samtals 13 milljónir Bandaríkja­dollara, jafnvirði rúmlega 1,6 milljarða króna, í bætur vegna of margra tilkynninga sem sendar voru í tölvu­pósti til notenda. Með greiðslunni vill LinkedIn útkljá hópmálsókn sem höfðuð var gegn fyrir­tækinu árið 2013. Fyrir­tækið greindi notendum frá samkomu­laginu í tölvu­pósti síðastliðinn föstudag. Í póstinum var notendum bent á hvernig þeir geta óskað eftir skaða­bóta­greiðslu, telji þeir sig eiga rétt á henni.

Notendum LinkedIn er mörgum kunnugt um þann mikla fjölda tölvu­pósta sem þessi samskipta­miðill atvinnu­lífsins sendir, oftast áminningar um að tengjast öðrum notendum. Skaða­bótamálið má rekja til skilmála svokallaðrar „Add connection“ þjónustu, þar sem notendum býðst að finna tengda aðila í gegnum netfangið sitt. Ef notandi óskar eftir tengingu þá er sá einstaklingur látinn vita með tölvu­pósti. Ef sú manneskja bregst ekki við er henni sendur annar tölvu­póstur til áminningar. Og síðan aftur. Samkvæmt skilmálum var LinkedIn ekki heimilt að senda tvo áminningar­pósta og hefur því samþykkt að greiða þeim notendum sem þess óska skaða­bætur, samkvæmt umfjöllun Quartz um málið. Þar er notendum sem fengu tölvu­póstinn síðastliðinn föstudag bent á hvernig þeir geta óskað eftir skaða­bótum.

> Unsubscribe from LinkedIn > Delete email account > Sell house, live in woods > Find bottle in river > Has note inside > It's from LinkedIn

— daryl (@darylginn) April 21, 2015


„Að gefnum þeim ótrúlega fjölda tölvu­pósta sem LinkedIn sendir notendum, þá vita starfs­menn líklegast hvenær tíma dags best er að hafa samband. Þess vegna er fyndið að tölvu­pósturinn um samkomu­lagið var sendur notendum seint á föstudag, á þeim tíma þegar fyrirtæki reyna jafnan að fela slæmar fréttir í þeirri von að almenningur taki ekki eftir því,“ segir í lok umfjöllunar Quartz, sem jafnframt segir að þótt notendur opni sjaldnast tölvu­pósta frá LinkedIn, þá ættu þeir að gera það núna.


Þeir sem skráðu sig fyrir tengsla-þjónustu LinkedIn í Banda­ríkjunum á tíma­bilinu frá 17. september 2011 til 31. október 2014 geta skráð sig fyrir móttöku skaða­bóta­greiðslu. Fyrir­tækið hefur samþykkt að greiða alls 13 milljónir dollara auk allt að 3,25 milljónum dollara í lögfræði­kostnað. Ef nægilega margir skrá sig þá mun LinkedIn bæta við 750 þúsund dollurum í skaðabóta­pottinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár