Ódýrasta og mest mengandi olían brennd í loðnubræðslum

Stærstu og stöndugustu sjávar­útvegs­fyrirtæki landsins brenna úrgangs­olíu í stórum stíl í bræðslum sínum. Olían er einn óumhverfis­vænsti kostur fyrir­tækjanna en um leið sá lang­ódýrasti.

Olíu­úrgangur á Íslandi hefur aldrei verið endur­unninn í sögu landsins þrátt fyrir að það sé hægt. Ein af ástæðunum fyrir því er sú að nokkrar loðnu­bræðslur á landinu virðast háðar því að geta brennt olíu­úrgang, þar sem hún er ódýrasta eldsneyti sem fæst. Brennslu­ofnarnir sem eru í loðnu­bræðslunum gætu í raun brennt hvaða eldsneyti sem er, meðal annars gasolíu sem er mun umhverfis­vænni kostur. En á meðan þeim stendur til boða lítið hreinsuð og þynnt úrgangs­olía, á mun lægra verði, brenna verksmiðjurnar henni og losa fyrir vikið mun meira af hættu­legum efnum út í andrúms­loftið. Verksmiðju­olían er þriðjungur þeirrar olíu sem brennd er á núverandi loðnu­vertíð.

Ein megin­ástæða þess að olía er ekki endur­unnin hér er sú að það borgar sig ekki. Enginn fjárhags­legur hvati er til þess, auk þess sem svo illa virðist staðið að flokkun og söfnun olíu­úrgangs og alls konar olíum og efnum blandað saman við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár