Hraðpróf í tengslum við smitgát úr sögunni og fólk í einangrun má fara í stutta göngutúra

Heilbrigðis­ráðherra hefur staðfest reglugerð þess efnis að þeir sem eru í smitgát þurfi ekki lengur að fara í hraðpróf, heldur einungis að fara gætilega. Einnig er rýmkað fyrir útiveru þeirra sem eru í einangrun.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.
Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Einstaklingum sem sæta smitgát í kjölfar smit­rakningar verður ekki lengur skylt að fara í hraðpróf við upphaf og lok smitgátar frá og með morgun­deginum, en þeir þurfa hins vegar að fara gætilega í 7 daga og í PCR próf ef einkenni koma fram.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðis­ráðuneytinu á vef stjórnar­ráðsins, en Willum Þór Þórsson hefur staðfest reglugerð þessa efnis.

Sama reglugerð veitir einstaklingum sem eru í einangrun jafnframt takmarkaða heimild til útiveru – þeir mega fara í gönguferð í nærumhverfi heimilis en verða að gæta að minnsta kosti tveggja metra fjar­lægðar frá öðrum vegfarendum. Miðað er við tvær göngu­ferðir á dag, að hámarki 30 mínútur í senn.

Á vef stjórnar­ráðsins segir að breytingarnar á reglum um smitgát séu gerðar í samræmi við tillögu Þórólfs Guðna­sonar sóttvarna­læknis og vísað er til þess að í minnis­blaði hans til ráðherra segi að einungis um 1 prósent af þeim tæplega 16.500 einstaklingum sem sættu smitgát á fyrstu 16 dögum ársins hefðu greinst smituð í kjölfar prófs.

„Full ástæða er til að endur­skoða þetta fyrir­komulag sérstak­lega í ljósi lágs hlutfalls smita og mikils fjölda sýna sem taka þarf,“ segir í minnis­blaði sóttvarna­læknis um þetta efni.

„Líkt og verið hefur mun rakninga­teymi leggja mat á hverjir skuli sæta sóttkví og hverjir smitgát með hliðsjón af því hve mikið hver og einn hefur verið útsettur fyrir smiti. Hjá þeim sem útsetningin er metin óveruleg gilda óbreyttar reglur um smitgát, að öðru leyti en því að smitgát stendur nú yfir í 7 daga og ekki er skylt að taka hraðpróf í upphafi eða við lok hennar. Ef einstaklingur í smitgát finnur fyrir einkennum sem bent geta til Covid-19 skal hann fara í PCR-próf.

Þeir sem eru í smitgát mega sækja vinnu og skóla og sinna nauðsyn­legum erindum. Þeir þurfa að hafa hugfast að smit er ekki útilokað, sýna aðgát, gæta vel að persónu­legum sótt­vörnum og fara þegar í stað í PCR sýnatöku ef einkenni um smit koma fram. Meðan á smitgát stendur skal takmarka samneyti við viðkvæma einstaklinga og aðra eins og hægt er,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Engar ráðleggingar um útiveru í minnisblaði Þórólfs

Í minnis­blaði sóttvarna­læknis er ekkert fjallað um þær breytingar sem einnig eru kynntar til sögunnar í dag og varða aukna útiveru þeirra sem eru í einangrun eftir að hafa greinst með COVID-19.

Í tilkynningunni á vef ráðuneytisins segir að núgildandi reglur feli í sér að þeir sem eru í einangrun megi í dag fara út á svalir eða út í einkagarð við heimili sitt, ef heilsan leyfi.

„Með þeirri breytingu sem heilbrigðis­ráðherra hefur ákveðið verður viðkomandi heimilt að fara í gönguferð í nærumhverfi heimilis síns ef heilsa leyfir. Þeir þurfa að halda sig í a.m.k. 2 metra fjarlægð frá öðrum vegfarendum og mega ekki fara á fjölsótt svæði. Miðað er við tvær göngu­ferðir á dag, að hámarki 30 mínútur í senn. Ekki unnt að bjóða full­orðnum sem eru í einangrun í sóttvarna­húsum útiveru en slíkt verður í boði fyrir börn,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár