Áskriftarsala að tónlist á netinu jókst um 40 prósent á milli ára

Árið 2013 greiddu um 28 milljónir manna fyrir áskrift að tónlist á internetinu, sem er aukning um 40 prósent frá árinu á undan. Á sama tíma hækkuðu tekjur af tónlistar­áskriftum um 51 prósent á milli ára, en tekjurnar hafa þrefaldast frá árinu 2010. Óhætt er að tala um spreninginu í þessum efnum, því árið 2010 greiddu aðeins um átta milljónir manna fyrir aðgang að tónlistar­veitum. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í frétt á vefsíðu IFPI, sem eru samtök tónlistar­útgefenda út um víða veröld.

Plötusala enn stærsta tekjulind útgefenda


Þrátt fyrir sívax­andi vin­sældir tón­list­ar­veitna á net­inu, á borð við Spotify og Deezer, er plötu­sala enn stærsta tekju­lind útgef­enda, og fer ört vax­andi. Þá heldur vín­il­plötu­sala áfram að aukast á milli ára, þó tekjur af sölu þeirra séu enn sára­litlar í stóra sam­heng­inu. Engu að síður jókst vín­il­plötu­sala um 32 pró­sent í Banda­ríkj­unum og 101 pró­sent á Bret­landseyjum á milli áranna 2012 og 2013.

Á síðasta ári var hlutfall plötusölu af tekjum útgefenda um 51 prósent, tekjur af tónlistar­veitum voru um 39 prósent af heildar­tekjum tónlistar­útgefenda, um sjö prósent teknanna komu í gegnum réttinda­greiðslna vegna útvarps­spilanna og tónleika­halds og þá nam hlutfall teknanna vegna tónlistar­notkunar í sjónvarps­þáttum og kvik­myndum bransanum um tveimur prósentum.

Tekjur af stafrænni miðlun tónlistar námu 5,9 milljörðum Bandaríkjadölum


Heild­ar­tekjur tón­list­ar­geirans vegna staf­rænnar miðl­unar tón­listar námu um 5,9 millj­örðum banda­ríkja­dölum á síð­asta ári, og hækk­uðu um 4,3 pró­sent á milli ára. Tekju­aukn­ing­una má helst skýra með mik­illi fjölgun tón­list­ar­á­skrif­enda og seldu tón­list­ar­nið­ur­hali.

VÍB, eða eigna­stýringar­þjónusta Íslands­banka, heldur fund um fjármál í íslenskri tónlist á morgun. Fundurinn verður haldinn á Kex Hostel við Skúlagötu og hefst klukkan 17:00. Þar verður meðal annars rætt um þá fjár­festingu sem felst í að koma íslensku tónlistar­fólki á framfæri erlendis og hver greiði fyrir slíkt. Þá verður sömuleiðis farið yfir tekjur í tónlistar­heiminum í dag, og þá breytingu sem orðið hefur í þeim efnum á undan­förnum árum. Þar verður leitast við að svara spurningunni: "Hvaðan koma tekjurnar og hverjir fá þær í raun?" Eins og kunnugt er hefst Iceland Airwaves tónlistar­hátíðin í næstu viku, en hátíðin hefur í gegnum tíðina reynst íslenskum hljómsveitum vel við að vekja athygli á tónlist sinni á heimsvísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár