Stjórnarformaður Samkeppniseftirlits hætti og settist í stjórn banka

Auður Finn­boga­dóttir er hætt sem stjórn­ar­for­maður Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið veitti henni lausn frá setu í stjórn stofn­un­ar­innar með bréfi sem dag­sett var 18. apríl 2016. Daginn eftir, þann 19. apríl, var Auður kosin í stjórn Íslands­banka.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, skip­aði nýja stjórn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins þann 1. des­em­ber 2015. Auður var skipuð for­maður stjórn­ar­innar í stað Krist­ínar Har­alds­dóttur sem baðst lausnar frá stjórn­ar­setu. Skipunin átti að gilda til 26. ágúst 2017. Fjórum og hálfum mán­uði eftir að hafa verið skipuð í starfið var Auður hins vegar til­nefnd af Banka­sýslu rík­is­ins sem nýr stjórn­ar­maður í Íslands­banka. Hún hlaut síðan kjör sem slíkur 19. apríl 2016.

Íslands­banki er nú kom­inn að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins í kjöl­far þess að hluta­bréf slita­bús Glitnis í bank­anum voru afhend rík­inu sem stöð­ug­leika­fram­lag. Banka­sýslan, sem mun fara með eign­ar­hlut rík­is­ins í bank­anum, skip­aði því sjö aðal­menn í stjórn Íslands­banka í apríl, þar af fimm nýja. Auður var einn þeirra.Sam­keppn­is­eft­ir­litið heim­ilaði yfir­töku íslenska rík­is­ins á Íslands­banka þann 11. mars síð­ast­lið­inn, með skil­yrðum sem aðilar máls­ins hafa sæst á að fylgja.

Ekki er búið að skipa nýjan mann í stjórn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í stað Auðar. Þangað til gegnir Eyvindur G. Gunn­ars­son stöðu stjórn­ar­for­manns og vara­menn taka sæti í þriggja manna stjórn stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár