Hugmynd er bara hugmynd en það er fólkið sem skiptir mál

„Hugmynd er bara hugmynd. Hún krefst alltaf framkvæmdar [...] Það er fólkið sem framkvæmir og það er það sem skiptir máli,“ segir Einar Gunnar Guðmundsson, sem sér um frumkvöðla- og nýsköpunarmál hjá Arion banka, en hann hefur fylgt Startup Reykjavík viðskipta­hraðlinum eftir frá því hann hóf göngu sína sumarið 2012.

Á dögunum hófst hraðallinn í fjórða skiptið, og freista tíu teymi, sem valin hafa verið áfram til þátttöku, þess að byggja upp ný fyrirtæki.

„Það sem við höfum séð að skiptir mestu máli er þraut­seigja og samvinna teymisins,“ segir Einar Gunnar.

https://vimeo.com/130738747

Verk­efn­in sem val­in hafa verið til þátt­töku í Startup Reykja­vík nú í sum­ar:


  • Wasa­bi Ice­land – Ætla að rækta hágæða wasa­bi á Íslandi með því að nýta hreint vatn og end­ur­nýj­an­lega orku

  • Ludis – Þróa leikja­vettvang sem gerir leikja­hönnuðum kleift að hanna og notendum að spila leiki sem nota samskipti á milli sjónvarps og síma

  • Elsendia – Teng­ir sam­an ra­f­ræn skil­ríki og ra­f­ræna lyf­seðla. Fólk get­ur keypt lyf á net­inu með ör­ugg­um hætti og fengið sent heim

  • Vik­ing Cars – Markaðs­torg þar sem bíla­eigendur geta deilt bílnum sínum með öðrum með öruggum hætti. Í raun eins og Airbnb nema fyrir bíla.

  • Spor í sand­inn – Sjálfbær gróðurhús tengd sundlaug í hjarta borgarinnar bjóða upp á sölu stað­bundinna matvæla og nýja upplifun í ferða­þjónustu fræðslu og afþreyingu

  • Genki instruments – Eru að þróa ný­stár­leg raf­tón­list­ar­hljóðfæri sem tengja má sam­an með áður óséðum hætti

  • Datadrive – Hug­búnaður sem tek­ur við upp­lýs­ing­um úr bíln­um þínum og teng­ir beint við snjallsím­ann

  • Delp­hi – Nýta þekk­ingu fjöld­ans til þess að spá fyr­ir um til­tekna viðburði í fram­tíðinni

  • Floori – Hugbúnaður sem hjálpar kennurum að skilja og meta árangur nemenda með því að bjóða upp á krossa­spurningar í gegnum vef og snjall­síma

  • Hún / Hann Brugg­hús – Örbrugghús með áherslu á frumlega gæðabjóra í takmörkuðu upplagi


Teymun­um tíu sem val­in hafa verið til þátt­töku verður lagt eft­ir­far­andi til:

  • Tvær millj­ón­ir í hluta­fé frá Ari­on banka gegn 6% hlut­deild í fyr­ir­tæk­inu

  • 10 vikna þjálf­un/​ráðgjöf frá men­tor­um víðs veg­ar að úr at­vinnu­líf­inu

  • Sam­eig­in­leg aðstaða allra viðskiptateym­anna

  • Tæki­færi til að kynna sig og verk­efni sín fyr­ir fjár­fest­um á loka­degi verk­efn­is­ins.


Þetta er annað árið í röð sem Kjarninn fylgir Startup Reykja­vík náið eftir, en allt frá stofnun Kjarnans hefur mikil áhersla verið lögð á nýsköpun og frum­kvöðla­starf­semi ýmis konar, í efn­is­tökum, og það sama má með segja um lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki.

Startup Reykjavík er samstarfs­verkefni Arion banka og Klak Innovit, og eru mynd­böndin unnin í samstarfi við hraðalinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár