Sakborningur í Samherjamálinu tæmdi bankareikninga sína fyrir handtöku

Mike Nghipunya, fyrr­verandi forstjóri ríkis­fyrir­tækisins Fishcor, er sagður hafa fengið greiddar rúmar 90 milljónir íslenskra króna fyrir aðkomu sína að Samherja­málinu í Namibíu. Hann lifði hátt og hratt og varði háum fjárhæðum í hemsóknir á nætur­klúbba í Windhoek samkvæmt namibískum fjöl­miðlum.

Staldra við lífsstílinn
Staldra við lífs­stíl­inn Fjöl­miðlar í Namibíu staldra við líff­stíl Mike Nghip­unya, fyrr­ver­andi for­stjóra rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor, sem setið hefur í gæslu­varð­haldi í eitt ár út af aðild sinni að Sam­herj­a­mál­inu.

Einn af sakborningunum í Samherja­málinu í Namibíu, Mike Nghipunya, nær tæmdi banka­reikninga sína áður en hann var hand­tekinn fyrir aðild sína að málinu í febrúar í fyrra. Hann hefur setið í gæslu­varðhaldi síðan og hefjast réttarhöld yfir honum í apríl á þessu ári. Greint er frá greiðslunum til Nghipunya og máli hans í namibískum fjöl­miðlum. 

Nghipunya var forstjóri ríkis­fyrir­tækisins Fishcor sem sá um að útvega sjávar­útvegs­fyrirtækjum kvóta og greiddi Samherji „hákörlunum“ svokölluðu mútu­greiðslur fyrir að fá hesta­makrílskvóta í gegnum fyrir­tækið. Sjóður í eigu Nghipunya, Gwanyemba Investment Trust, fékk greiddar 10,5 milljónir Namibíu­dollara, rúmar 90 milljónir króna, á árunum 2017 til 2019 og eru þessir fjármunir taldir hafa verið hlutdeild Nghipunya í að koma að málinu. Þar af voru 6,5 milljónir Namibíu­dollara greiddar inn á banka­reikning sjóðs Nghipunya á milli janúar og nóvember 2019 en í þeim mánuði greindu Kveikur, Stundin, Wikileaks og Al Jazeera frá því að Samherji hefði greitt hópi Namibíu­manna í áhrifa­stöðum undir borðið til að fá aðgang að hesta­makrílskvóta í Namibíu.

Rekja lífs­stíl­innSak­born­ing­arnir í Namibíu lifðu allir hátt, eins og fjöl­miðlar þar í landi hafa rakið. Sacky Shangala, James Hatuikulipi og Tamson Hatuikulipi sjást hér í vélsleða­ferð í Eyjafiði í boðii Samherja.

Greiðslurnar taldar nema 2 milljörðum Namibíudollara

Eftir að fjöl­miðlar greindu fyrst frá Samherja­málinu, viðtak­endur fjár­munanna frá Samherja voru hnepptir í gæslu­varðhald og rannsókn málsins fór á fullt í Namibíu hefur ýmislegt áhugavert komið í ljós og málið hefur stækkað mjög. Til að mynda þá telja rannsakendurnir í Namibíu nú að greiðslur til þessa hóps manna og meðreiðar­sveina þeirra nemi um 2 milljörðum Namibíu­dollara, eða rúmlega 17 milljörðum íslenskra króna. Einungis lítill hluti af þessu fé er talinn hafa komið frá Samherja. 

Þegar upphaf­lega var greint frá málinu var raktar greiðslur frá Samherja til hópsins sem námu um 1,4 milljarði íslenskra króna eða um 164 milljónum Namibíu­dollara. Ákæru­valdið og spillingar­lögreglan í Namibíu hafa því komist að því í rann­sóknum sínum að greiðslurnar í málinu sem mögulega eru óeðlilegar hafi komið frá fleiri aðilum en Samherja þó svo að „hákarlarnir“ hafi verið hnepptir í gæslu­varðhald á grund­velli greiðslnanna sem þeir fengu frá Samherja. 

Rannsókn málsins hefur því sprungið út og snýst nú meðal annars um það að forseti landsins, Hage Geingob, og Swapo-flokkurinn, valda­flokkurinn í landinu sem „hákarlarnir“ tilheyra, hafi komið að því að skipuleggja viðskiptin með kvótann sem nú er til rann­sóknar sem mútubrot. 

Teikna upp mynd af einkaneyslu Nghipunya

Fjöl­miðlar í Namibíu fjalla um einka­neyslu Nghipunya í samhengi við rannsókn Samherja­málsins og þá fjármuni sem hann fékk í sinn hlut. Nghipunya stofnaði meðal annars sína eigin tískufata­línu, TM Clothing, árið 2017 og fjárfesti fyrir rúmlega 2,3 milljónir íslenskra króna í henni á árunum 2017 til 2020. 

Þá er hann sagður hafa notið þess að eyða fjármunum á nætur­klúbbum og meðal annars eytt tæplega 800 þúsund krónum á slíkum stöðum í höfuð­borginni Windhoek á árunum 2018 og 2019. Á einu kvöldi á klúbbnum The Experience er hann sagður hafa eytt tæplega 182 þúsund krónum. 

Þá rekja nambískir miðlar að hann hafi keypt nokkrar fasteignir í Namibíu, eytt mörg hundruð þúsund krónum í flugmiða til landa í Evrópu og Afríku, eytt miklum peningum á flug­vellinum í Madríd og í stór­verslun þar í borg, sem og að dvelja á dýrum lúxus­hótelum á ferðum sínum. 

Namibískir fjöl­miðlar hafa með sambærilegum hætti greint frá einka­neyslu annarra sakborninga í Samherja­málinu, meðal annars þeirra Tamson Hatukulipi og Sacky Shangala, og meðal annars sagt frá fjár­festingum þeirra í lúxus­bílum og dýrum úrum. 

Með þessu eru namibískir fjöl­miðlar að teikna upp meðal annars í hvaða peningarnir fóru sem þessir einstaklingar fengu fyrir aðkomu sína að Samherja­málinu, sem kallað er Fishrot á ensku, og sem vindur stöðugt upp á sig. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár