Skyldi þetta vera mennskur hundur?

Brynhildur Gísla­dóttir og tíkin Táta er tengdar tryggðar­böndum. Þær skilja hvor aðra.

Varð fyrir íþróttameiðslum
Varð fyrir íþrótta­meiðslum Tíkin Táta varð fyrir íþrótta­meiðslum á dög­unum þegar hún elt­ist við kan­ínu. Bryn­hildur eig­andi hennar er eilítið kvíð­inn fyrir aðgerð­inni sem Táta þarf að fara í af þeim sökum.

„Synir mínir minna mig stundum á að hún sé bara hundur. Við erum rosalega nánar. Hún les mig og ég les hana. Ég horfi stundum á hana og hugsa: Skyldi þetta vera mennskur hundur? Við erum svona um það bil jafn­gamlar, ég er 61 árs og hún er 9 ára í hundaárum, sem er svona um það bil sextugt í mannsárum.

Hún er að fara í aðgerð á morgun, því hún er með íþrótta­meiðsl. Mér finnst svolítið flott að svona full­orðinn hundur sé með íþrótta­meiðsl. Það vildi þannig til að ég fór með hana á upp að Rauða­vatni. Þar elti hún kanínu inn í skóginn en kom til baka haltrandi. Ég þurfti að halda á henni alla leiðina í bílinn, sem var gott krossfit fyrir mig, gömlu konuna.

Ég er með þetta áhyggjugen, svo ég er voðalega kvíðin fyrir þessari aðgerð hennar. Mér þykir bara svo ofsalega vænt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár