Hrun á gríska hlutabréfamarkaðinum - Hlutabréf lækkuðu um meira en fimmtung

Hlutabréf í kaup­höllinni í Grikk­landi hríðféllu í verði eftir að hún var opnuð í fyrsta sinn í fimm vikur í morgun. Hlutabréfa­vísitala kaup­hallarinnar í Aþenu hafði lækkað um tæplega 23 prósent skömmu eftir opnun í morgun. Hún hefur lítillega hækkað síðan en lækkun í dag er enn um 20 prósent. Hlutabréfa­vísitalan hefur ekki mælst jafn lág síðan um mitt ár 2012.

Þetta hrun er í takti við spár sérfræðinga sem töldu fullvíst að verð hluta­bréfa myndi falla skarpt eftir opnunina, enda hefur kaup­höllin verið lokuð frá því að Grikkir settu á fjármagns­höft og felldu björgunar­pakka kröfuhafa sinna í þjóðar­atkvæða­greiðslu í byrjun júlí. Síðan þá hefur verið samið um nýjan björgunar­pakka sem felur í sér mikinn niður­skurð og aðlögun í ríkis­fjármálum auk þess sem Grikkir hafa samþykkt að einkavæða tíu sinnum fleiri ríkis­eignir en hafa verið einka­væddar hingað til.

Langt í land


Þrátt fyrir að Grikkir hafi sam­þykkt björg­un­ar­pakka kröfu­hafa sinna þá ríkir enn gríð­ar­leg óvissa í land­inu. For­sæt­is­ráð­herr­ann, Alexis Tsipras, er að glima við mikla and­stöðu innan flokks síns, Syriza, vegna sam­komu­lags­ins, sem felur í sér mjög sárs­auka­fullar nið­ur­skurðar- og end­ur­skipu­lagn­ing­ar­að­gerðir á grískum rík­is­fjár­málum og að gríska ríkið verður að einka­væða tíu sinnum fleiri rík­is­eignir en Grikkir hafa einka­vætt hingað til, sam­kvæmt Business Insider.

Síðastliðinn miðvikudag var stjórn Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins svo upplýst um það að sjóðurinn geti ekki tekið þátt í þriðju neyðarlána­veitingunni til Grikk­lands. Ástæðan er sú að skuldir Grikkja eru svo háar og þeir hafa ekki sýnt fram á það hingað til að þeir geti framfylgt áætlunum um umbætur.

Sjóðurinn mun taka þátt í viðræðum um neyðarlána­pakkann, sem nú fara fram í Aþenu, en hann mun ekki ákveða hvort hann tekur þátt í nýjum aðgerða­pakka fyrr en eftir einhverja mánuði og mögulega ekki fyrr en á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár