AGS getur ekki tekið þátt í neyðarlánaveitingu til Grikkja

Stjórn Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins hefur verið upp­lýst um það að sjóð­ur­inn geti ekki tekið þátt í þriðju neyð­ar­lána­veit­ing­unni til Grikk­lands. Financial Times greinir frá þessu, en mið­ill­inn hefur undir höndum fund­ar­gerð stjórn­ar­fundar AGS sem fór fram í gær. Ástæðan er sú að skuldir Grikkja eru svo háar og þeir hafa ekki sýnt fram á það hingað til að þeir geti fram­fylgt áætl­unum um umbætur.

Starfs­fólk sjóðs­ins upp­lýsti stjórn­ina um þetta á tveggja klukku­stunda fundi í gær. Sjóð­ur­inn mun taka þátt í við­ræðum um neyð­ar­lána­pakk­ann, sem nú fara fram í Aþenu, en hann mun ekki ákveða hvort hann tekur þátt í nýjum aðgerða­pakka fyrr en eftir ein­hverja mán­uði og mögu­lega ekki fyrr en á næsta ári.

Það verður engin ákvörðun tekin fyrr en á næsta stigi máls­ins, eftir að Grikkir hafa ráð­ist í miklar umbætur, og einnig eftir að lán­ar­drottnar þeirra á evru­svæð­inu hafa komið sér saman um nið­ur­fell­ingu á skuldum Grikkja. Sjóð­ur­inn hefur ítrekað sagt und­an­farnar vikur að fella þurfi niður skuldir Grikkja til þess að gera þær sjálf­bærar, en evru­ríkin eru mót­fallin slíkri nið­ur­fell­ingu. Angela Merkel Þýska­landskansl­ari hefur sagt oftar en einu sinni að það sé ekki hægt að fella niður skuldir í mynt­banda­lagi.

Þetta gæti haft veru­legar afleið­ingar í för með sér, sér­stak­lega í Þýska­landi þar sem talið er ólík­legt að neyð­ar­lána­veit­ing verði sam­þykkt af þing­inu án þess að AGS sé með í pakk­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár