Standard og Poor's greiðir 1,4 milljarða dala sekt vegna kreppunnar

Mats­fyrirtækið Standard og Poor's (S&P) hefur samþykkt að greiða 1,38 milljarða bandaríkja­dala sáttar­greiðslu til stjórn­valda sem kærðu fyrir­tækið fyrir að hafa gefið út uppblásið verðmat á húsnæðis­lána­verðbréfum (mortage-backed securities) og öðrum eignum í húsnæðis­bólunni, og með því stuðlað að fjármála­kreppunni. Frétta­miðillinn USA Today greinir frá málinu.

Samkvæmt samkomu­laginu greiðir S&P hátt í 688 milljónir bandaríkja­dala til bandaríska dómsmála­ráðuneytisins, og sömu upphæð til nítján fylkja og Washington D.C. Aldrei fyrr hefur mats­fyrirtæki greitt jafn háa upphæð í formi sektar­greiðslu.

Mat Standard & Poor's litað af hagsmunaárekstrum


Á árunum 2004 til 2007, full­yrti S&P rang­lega að mat fyr­ir­tæk­is­ins á hús­næð­is­lána­verð­bréfum og afleiðum væri hlut­laust og sjálf­stætt. Í raun var mat fyr­ir­tæk­is­ins litað af hags­muna­á­rekstrum, sér í lagi vilja S&P til að auka tekjur sínar með því að gefa út heil­brigð­is­vott­orð á skuld­irnar sem bank­arnir voru að selja, að því er fram kemur í mál­flutn­ingi banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Eric Holder, dómsmála­ráðherra Banda­ríkjanna, segir að yfir­stjórn S&P hafi ítrekað hunsað áhyggjur helstu sérfræðinga fyrir­tækisins um að það hefði gefið út topp­einkunnir á fjármála­afurðir sem stæðu ekki undir þeim. Á meðan þessi stjórnun hafi hjálpað S&P að halda viðskipa­vinum sínum ánægðum, það er fjármála­fyrir­tækjunum, hafi athæfið stór­skaðað hagkerfi Banda­ríkjanna og stuðlað að verstu fjármála­kreppu í landinu síðan í kreppunni miklu.

Sáttar­greiðslu­samkomu­lagið, sem tilkynnt var um í dag, leit dagsins ljós eftir margra mánaða samninga­fundi. Nú þegar eru uppi gagnrýnis­raddir um að í samkomu­laginu sé ekki að finna klausu þar sem S&P viðurkennir að hafa brotið lög.

Lítið og lélegt


Við­skipta­lög­fræð­ing­ur­inn Andrew Stolt­mann gagn­rýnir þetta mjög, í umfjöllun USA Today, og segir S&P sleppa allt of auð­veld­lega frá borði. Sektin hafi ekki verið nægi­lega há til að draga úr hættu á sams­konar hegðun í fram­tíð­inni.

Í þessari viku verða liðin tvö ár frá því að bandaríska dómsmála­ráðuneytið kærði S&P fyrir svik, og sakaði fyrir­tækið um að hafa látið undir höfuð leggjast að vara fjárfesta við yfir­vofandi hruni húsnæðis­markaðarins, til að skaða ekki afkomu sína.

Dómsmála­ráðuneytið krafðist þess upphaf­lega að S&P yrði dæmt til að greiða fimm milljarða Bandaríkja­dala í sekt fyrir athæfi sitt, en sáttar­greiðslu­fjárhæðin nú upp á tæpa 1,4 milljarða dala er lægri en sem nemur tekjum S&P á árinu 2013. Þá námu tekjur Standard og Poor's tæpum 2,3 milljörðum Bandaríkja­dala.

Fleiri málshöfðanir í undirbúningi?


Sér­fræð­ingar segja að mála­ferli banda­rískra yfir­valda gegn S&P gefi for­smekk­inn að frek­ari máls­höfð­unum gegn hinum stóru mats­fyr­ir­tækj­unum, Fitch og Moody's. Mats­fyr­ir­tækin þrjú hafa nefni­lega öll verið sökuð um að kynda undir fjár­málakrepp­una með því að gefa út heil­brigð­is­vott­orð á eitruð hús­næð­is­lán sem bank­arnir seldu svo líf­eyr­is­sjóðum og öðrum fjár­festum. Sömu mats­fyr­ir­tækin gáfu ítrekað út heil­brigð­is­vott­orð á íslensku bank­ana, og því má velta fyrir sér rétt­ar­stöðu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna og ann­arra hlut­hafa í bönk­unum í þessu sam­bandi.

Þegar málið hófst vísaði S&P öllum ásökunum um ámælis­verð vinnu­brögð á bug, og sagði þær innistæðu­lausar og „einfald­lega ósannar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár