Ný ríkisstjórn ætlar að herða reglur um steranotkun einstaklinga

Óttarr Proppé ætlar að leggja fram frumvarp til laga um misnotkun vefja­aukandi efna og stera.

Óttarr Proppé, heilbrigðis­ráðherra og formaður Bjartrar framtíðar, ætlar að leggja fram frumvarp til laga um misnotkun vefja­aukandi efna og stera.

Þetta kemur fram í þing­málaskrá nýrrar ríkis­stjórnar sem birtist á vef Alþingis í kvöld. Stefnt er að því að frum­varpið komi fram í mars á þessu ári.

Fullyrt er að nauðsynlegt sé að leggja fram frumvarp sem spornar við misnotkun á vefja­aukandi efnum og sterum. „Engin lög eru í gildi sem taka á misnotkun vefja­aukandi efna og stera, en óskað hefur verið eftir af ýmsum aðilum að lögfestar verði reglur á þessu sviði,“ segir í þing­málaskránni auk þess sem fram kemur að höfð verði hliðsjón af sambærilegri danskri löggjöf.

Í Danmörku eru í gildi sérstök lög um stera og er hámarks­refsing fyrir vörslu þeirra tveggja ára fangelsi. Sterar falla undir lyfjalög á Íslandi og varðar varsla á þeim fjár­sekt­um en ekki fang­elsis­vist. Þetta gæti breyst með nýjum lögum. Reglu­verkinu er m.a. ætlað að taka á hvers kyns misnotkun, fram­leiðslu, innflutningi og dreifingu á þessum efnum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár