Instagram 35faldast í verði, besta fjárfesting Zuckerberg frá upphafi

Markaðs­virði samfélags­miðilsins Instagram er 35 milljarðar dala, rúmlega 4.400 milljarðar íslenskra króna. Þetta hefur Business Insider eftir greinanda Citi bankans, Mark May. Til að setja þessa tölu í samhengi þá var verg þjóðar­framleiðsla á Íslandi í fyrra 1.873 milljarðar króna, eða rúmlega 40 prósent af markaðs­virði Instagram.

Það virðist því vera að Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook, hafi veðjað á réttan hest þegar hann greiddi einn milljarð dala fyrir Instagram í apríl 2012. Hann hefur nefnilega 35faldað þá fjár­festingu miðað við mat Citi. Gangi spár um tekjur Instagram á næsta ári eftir er ljóst að kaupin á Instagram munu verða ein þau bestu í viðskipta­sögunni.

Auglýsingatekjur farnar að streyma inn


Kaup Facebook á Instagram voru gagn­rýnd víða á sínum tíma, enda tekjur Instagram engar á þeim tíma sem kaupin áttu sér stað. Margir virt­ust eiga í vand­ræðum með að sjá hvernig þessi mynda­sam­fé­lags­mið­ill ætl­aði sér að ná í tekjur. En Zuckerberg sá mikil tæki­færi í Instagram.

Í síðustu viku var tilkynnt að Instagram væri komin með fleiri notendur en Twitter, en þeir eru yfir 300 milljónir. Notendur Instagram eru líka 1,8 sinnum virkari en notendur Twitter.Og í þessum gríðar­lega fjölda notenda, sem er auk þess mjög virkur á miðlinum, telur Facebook að liggi tækifæri til að græða ótrúlegt magn af peningum.

instagram1
instagram1

Í dag græðir Facebook lítið á Instagram. Auglýsinga­sala á miðlinum hófst enda ekki fyrr en á síðari hluta árs 2013 í Banda­ríkjunum. Instagram tókst samstundis að laða að sér mjög verðmæta auglýsendur á borð við Adidas, Ben & Jerry´s, Burberry, General Electric, Levi´s, Lexus, Macy´s, Michael Kors, PayPal og Starwood. Instagram hleypti síðan auglýsendum utan Banda­ríkjanna að í ár.

May býst við því að árið 2015 verði árið sem Instagram, og raunar aðrar fjár­festingar Facebook sem ekki tengjast grunn­rekstri fyrir­tækisins beint, muni fara að hala inn fé. Miðað við þann vöxt sem orðið hefur í auglýsinga­sölu hjá Instagram býst hann við að tekjur fyrir­tækisins gætu orðið um 2,7 milljarðar dala, um 340 milljarðar króna, á árinu 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár