Aðalmeðferð í máli Arion banka gegn Seðlabanka og ríkinu fer fram í næsta mánuði

Fjármála­eftirlit Seðla­bankans sektaði Arion banka um tæpar 88 milljónir króna í sumarið 2020. Ástæðan var sú að upplýsingar um fyrir­hugaðar fjölda­uppsagnir í bankanum birtust í fjöl­miðlum. Bankinn höfðaði mál og vill að ákvörðunin verði ógild.

Mál sem Arion banki höfð­aði gegn Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands (FME) til að fá sekt sem eft­ir­litið lagði á bank­ann sumarið 2020 er á dag­skrá hér­aðs­dóms Reykja­víkur í mars. Frá þessu er greint í árs­reikningi Arion banka sem var birtur í síðustu viku.

Sekt­in, sem var upp á 87,7 millj­ónir króna, var lögð á vegna þess að Arion banki birti ekki innherja­upplýsingar nægj­an­lega tím­an­lega. Stjórn­endur bankans voru ósáttir við sektina þótt hún hafi verið greidd og stefndi bæði Seðla­bankanum og íslenska ríkinu til að fá ákvörðunina ógilda.

Innherjaupplýsingar birtust

For­saga máls­ins er sú að 6. sept­em­ber 2020 var hald­inn fundur hjá nefnd sem kall­ast Insider Disclosure Forum (indifo) innan Arion banka. Til umræðu á fund­inum voru fyr­ir­hug­aðar skipu­lags­breyt­ingar og hóp­upp­sagnir hjá bank­an­um.

Í fund­ar­gerð nefnd­ar­inn­ar, sem birt var í ákvörðun FME, kom fram að til stæði að segja upp 80 til 100 manns. Það, ásamt skipu­lags­breyt­ingum sem ráð­ast átti í sam­hliða, átti að lækka rekstr­ar­kostnað bank­ans um 1,5 millj­arða króna á árs­grund­velli. Nefnd­ar­menn voru sam­mála um að um innherja­upplýsingar væri að ræða og að skil­yrði væru fyrir því að til­kynna ákvörð­un­ina ekki í Kaup­höll Íslands strax, til að gæta jafn­ræðis fjár­festa.

22. sept­em­ber 2019 birt­ist frétt á vefnum Mannlíf.is með fyr­ir­sögn­inni „Allt að 80 manns sagt upp hjá Arion banka“. Í frétt­inni var full­yrt að skipu­lags­breyt­ingar væru í far­vatn­inu hjá Arion banka og að upp­sagnir myndu hefj­ast dag­inn eft­ir. Sama dag birti Kjarn­inn frétta­skýr­ingu um að þrá­látur orðrómur væri um að umfangs­miklar upp­sagnir væru í far­vatn­inu hjá Arion banka.

Indifo-­nefndin ræddi frétt Mann­lífs dag­inn eft­ir, þann 23. sept­em­ber. Nefnd­ar­menn voru sam­mála um að frétt Mann­lífs væri röng, bæði væri tala þeirra sem ætti að segja upp ekki nákvæm­lega rétt né dag­setn­ing upp­sagna. Því væru enn skil­yrði fyrir hendi til að fresta birt­ingu á innherja­upplýsingum.

Til­kynnt um upp­sagnir eftir að frétt birtist

Þremur dögum síð­ar, 26. sept­em­ber 2019, var birt til­kynn­ing frá Arion banka um að stjórn bank­ans hefði á fundi sínum þá um morg­un­inn sam­þykkt nýtt skipu­lag sem taka ætti gildi sama dag. Um eitt hund­rað manns myndu missa vinn­una vegna þessa.

Haft var eftir Bene­dikt Gísla­syni, banka­stjóra Arion banka, að rekstr­ar­kostn­aður bank­ans væri of hár og að skipu­lag bank­ans tæki ekki nægj­an­­lega vel mið af núver­andi mark­aðs­að­­stæðum og þörfum atvinn­u­lífs­ins.

FME ákvað að taka til athug­unar hvort að þær upp­lýs­ingar sem ræddar höfðu verið á nefnd­ar­fund­inum 6. sept­em­ber 2019, og var ákveðið að fresta birt­ingu á, væru sam­bæri­legar og þeim sem birt­ust í frétt Mann­lífs 22. sept­em­ber 2019.

„Mark­tæk áhrif á mark­aðs­verð“

FME komst að þeirri nið­ur­stöðu að svo væri. Í nið­ur­stöðu­kafla ákvörð­unar eft­ir­lits­ins sagði meðal ann­ars að upp­lýs­ing­arnar sem um ræddi væru lík­legar til að hafa „mark­tæk áhrif á mark­aðs­verð“ Arion banka enda um umfangs­miklar breyt­ingar á lyk­il­stærðum í rekstri bank­ans að ræða.

Að mati FME vant­aði mikið upp á að Arion banki virti þá skyldu sem á bank­anum hvíldi um að birta innherja­upplýsingarnar eins fljótt og auðið var eftir að ljóst var að ekki hefði tek­ist að gæta trún­aðar um þær. „Með því að birta ekki innherja­upplýsingar á þeim tíma­punkti hefðu fjár­festar með réttu getað gert ráð fyrir að frétta Mann­lífs væri orðrómur sem ætti ekki við rök að styðj­ast.“

Eft­ir­litið ákvað að sekta Arion banka um 87,7 millj­ónir króna. Við ákvörðun sekt­ar­fjár­hæðar var meðal ann­ars tekið mið af því að brot bank­ans hafi staðið í fjóra daga.

Í árs­hluta­reikn­ingi Arion banka sem birtur var í ­haustið 2020 var greint frá því að bank­inn hefði höfðað mál fyrir hér­aðs­dómi Reykja­víkur til að fá nið­ur­stöðu FME hnekkt. Bank­inn telur að umfjöllun Mann­lífs hafi falið í sér get­gátur byggðar á þegar birtum upp­lýs­ingum en haustið 2019 hafði ítrekað birst umfjöllun í fjöl­miðlum um að vænta mætti breyt­inga og hag­ræð­ingar í rekstri bank­ans. Af þessu leiddi að skil­yrði fyrir frestun á birt­ingu innherja­upplýsinga voru enn upp­fyllt að mati bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár