Viðræðunum slitið: Engin ný hægri stjórn

Sjálfstæðis­flokkurinn vildi ekki markaðs­leið í sjávar­útvegi og viðræðum við Viðreisn og Bjarta framtíð var slitið.

Viðræðum um nýja hægri stjórn Viðreisnar, Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðis­flokks hefur nú verið slitið. Líklegt er að stjórnar­myndunar­umboðið færist nú til Katrínar Jakobs­dóttur, formanns VG.

Boðað hefur verið til fundar á Bessa­stöðum klukkan fimm í dag, þar sem Bjarni Benediktsson hittir Guðna Th. Jóhannesson forseta. 

Óttarr útskýrir á Facebook að Björt framtíð hafi staðið fast á prinsipum í viðræðunum.

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir á Facebooksíðu sinni að Bjarni Benediktsson hafi slitið viðræðunum: „Stjórnar­myndunar­viðræðum DAC var slitið af Bjarna Benedikts­syni fyrr í dag. Við fórum í þessar viðræður bjartsýn og með áherslu á ákveðin málefni. Því miður reyndist bilið, sérstak­lega í sjávar­útvegs­málum, óbrúanlegt að sinni.“

Bjarni vill breiðari skírskotun

Í tilkynningu frá framkvæmda­stjóra þing­flokks Sjálfstæðis­manna kemur ekki fram hvar ágrein­ingurinn lægi: „Fundir flokkanna að undan­förnu hafa leitt í ljós góðan samhljóm um ýmis mál, en áherslumun um útfærslu annarra, enda stefna flokkanna ólík á ýmsum sviðum,“ segir þar.

Haft er eftir Bjarna í frétta­tilkynningunni að málefna­grunnurinn hafi ekki staðist. „Ég tel að samtöl undan­farinna daga hafi leitt í ljós að það væri afar óvarlegt að leggja af stað með þann málefna­grunn sem um er rætt og nauman meirihluta inn í kjör­tímabilið.  Margt segir mér að aðstæður kalli á  ríkis­stjórn með breiðari skírskotun og sterkari meirihluta en þann sem þessir þrír flokkar geta boðið. Ég útiloka ekkert fyrirfram í þeim efnum.“

Vildu raða í ráðherraembætti

Samkvæmt fréttum Kjarnans og DV stóð Sjálfstæðis­flokkurinn gegn því að bjóða upp afla­heimildir á markaði, eða svokallaðri uppboðs­leið. Bæði Viðreisn og Björt framtíð höfðu á stefnu­skrá sinni að fara markaðs­leið með fiskveiði­stjórnunar­kerfið.

Þá kemur fram hjá DV að Sjálfstæðis­flokkurinn hafi strax viljað raða í ráðherra­embætti.

Björt Ólafs­dóttir sagði í samtali við Stundina í gærkvöldi að ótímabært væri að ræða ráðherra­embætti.

„Það er ekki komið á það stig. Það er ekki tímabært að ræða fyrr en öll málefni eru „in the clear“. Og við erum ekki komin þangað. Ég veit ekki einu sinni hvort ég vilji verða ráðherra. Við erum lítill þing­flokkur. Kannski væri Óttarr bara mjög góður forseti þingsins. Eða hvað. Þetta er bara svo ótímabært hjá okkur.“ 

Sjávarútvegsmálin stóðu í veginum

„Tekið verði upp markaðs­tengt auðlinda­gjald í sjávar­útvegi. Íslendingar beiti sér af afli gegn mengun hafsins varðandi þrávirk efni og aðra mengunar­valda,“ segir í stefnu Viðreisnar.

Björt framtíð styður einnig markaðs­leið. „Við viljum byggja á aflamarks­kerfi, en nýta markaðinn til að greinin greiði sann­gjarnt gjald fyrir aðgengið að miðunum. Um leið geta nýir aðilar haslað sér völl án þess að kaupa veiði­heimildir af öðrum í greininni, í samræmi við álit mann­réttinda­nefndar SÞ.“

Sjálfstæðisflokkur viðheldur kvótakerfinu

Sjálfstæðis­flokkurinn hefur verið andvígur uppboðs­leiðinni og vill að núverandi eigendur kvótans haldi honum, nema þeir kjósi að áfram­selja hann. Aðstoðar­maður Bjarna Benedikts­sonar, nýkjörni þing­maðurinn Teitur Björn Einarsson, er einn meðlima málefna­hóps Sjálfstæðis­flokksins í viðræðunum. Hann skrifaði meðal annars grein í ágúst þar sem hann gagnrýndi uppboðs­leiðina út frá því að hún gæti raskað byggð í landinu. 

Í stjórnmála­ályktun Sjálfstæðis­flokksins er skýrt kveðið á um að núverandi kvóta­kerfi verði viðhaldið. 

„Tryggja þarf stöðug­leika í rekstrar­umhverfi íslensks sjávar­útvegs á grund­velli núgildandi aflamarks­kerfis svo greinin haldi áfram að vaxa á grund­velli sjálf­bærrar nýtingar fiskistofna. Í skjóli öflugs sjávar­útvegs vex nýsköpun og vöruþróun. Grund­völlur arðsemi sjávar­útvegs mun byggja á samþættingu veiða, vinnslu og markaðar. Góðar samgöngur innanlands og milli landa eru forsenda þess að tryggja gæði og afhendingar­öryggi sjávar­afurða“.

Fleiri ríkisstjórnir í boði

Vinstri grænir gætu myndað tvær fimm flokka ríkis­stjórnir án Sjálfstæðis­flokksins, annars vegar með Viðreisn, og hins vegar Framsóknar­flokki. 

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, hefur hins vegar lýst því yfir að hann vilji ekki „Pírata­bandalag“. 

Stjórn með Framsókn: VG (10)+Píratar (10)+Framsókn (8)+Björt framtíð (4) og Samfylking (3): 35 þingmenn

Stjórn með Viðreisn: VG (10)+Píratar (10)+Viðreisn (7)+Björt framtíð (4) og Samfylking (3): 34 þingmenn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár