Eyrir Invest eignast þriðjung í fyrirtæki Heiðu Kristínar og Oliver Luckett

Eyrir Invest hefur keypt stóran hlut í nýju fyrirtæki sem ætlar sé að byggja upp nýjar markaðs- og sölu­leiðir fyrir íslensk fyrirtæki þar sem áhersla verður lögð á að nýta internetið og aðlagast auknum hreyfanleika fólks.

Fyrir­tækið Efni hf., sem ætlar að byggja upp nýjar markaðs- og sölu­leiðir fyrir íslensk fyrirtæki sem framleiða hágæða vörur og þjónustu, hefur aukið hlutafé sitt og selt Eyri Invest þriðjung þess. Efni verður eftir það í eigu Heiðu Kristínar Helga­dóttur, framkvæmda­stjóra félagsins og fyrr­verandi stjórnar­formanns Bjartrar framtíðar, og Oliver Luckett, samfélags­miðla­sérfræðings sem er stjórnar­formaður félagsins, og Eyrir Invest.

Í tilkynningu vegna þessa segir að internetið og aukin hreyfanleiki fólks hafi breytt aðgengi fyrir­tækja að mörkuðum og því hvernig neytendur og fyrirtæki nálgist vörur. Því þurfi að beita nýjum aðgerðum við markaðs­setningu til að ná til neytenda. „Á sama tíma hefur alþjóð­legur áhugi á Íslandi aldrei verið meiri og mögu­leikar íslenskra fyrir­tækja til að markaðs­setja sig og ná til mjög stórs hóps neytenda er því mikill. Fjar­lægðin frá mörkuðum er ekki lengur hindrun og Eyrir og Efni sjá mjög mörg tækifæri til þess að nýta sér þessa breyttu heimsmynd og færa íslenskt hugvit og fram­leiðslu beint til neytenda með hjálp nútíma­tækni.“

Þórður Magnússon, stjórnar­formaður Eyris Invest, segir að aðgangur að sölu­leiðum hafi löngum verið ein stærsta hindrunin í uppbyggingu nýrra fyrir­tækja á Íslandi. „Í gegnum tíðina hafa uppkaup á dreifi­leiðum iðulega verið eina færa leiðin til þess að komast inn á alþjóð­lega markaði og ná uppskölun. Á undan­förnum árum hafa verið að byggjast upp nýjar markaðs- og sölu­leiðir í gegnum internetið og netsölu og við teljum að með samstarfi við Efni og víðtæka reynslu og þekkingu Heiðu og Olivers gefist okkur einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu.“

Heiða segir að Efni sé tilbúið að hlaupa og hefjast handa við þetta stóra verkefni. „Eyrir er frábær samstarfs­aðili fyrir okkur Oliver, með langa reynslu og tengingar í íslensku viðskipta­lífi sem við munum koma til með að nýta okkur og saman getum við látið góðar hugmyndir verða að veruleika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár