Icelandair skrifar undir samning við lettneska flugfélagið airBaltic

Um er að ræða samstarfs­samning sem felur í sér að bæði flug­félögin geta selt og gefið út flugmiða hvort hjá öðru.

Icelandair hefur undir­ritað samning við lettneska flug­félagið airBaltic um sammerkt flug félaganna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

Þar segir að um sé að ræða samstarfs­samning sem felur í sér að bæði flug­félögin geti selt og gefið út flugmiða hvort hjá öðru. Þannig geti viðskipta­vinir Icelandair keypt einn farseðil frá Íslandi eða Banda­ríkjunum til áfanga­staða airBaltic í Eystrasalts­ríkjunum og Austur-Evrópu. Á móti geti viðskipta­vinir airBaltic keypt miða til Íslands og yfir hafið til áfanga­staða Icelandair í Norður-Ameríku.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í tilkynningunni að með því að tengja leiða­kerfi Icelandair við airBaltic bjóði þau viðskipta­vinum aukna valmöguleika þegar kemur að tengingum í Eystrasalts­ríkjunum og Austur-Evrópu. „Á móti geta viðskipta­vinir airBaltic nýtt sér mikil­vægar tengingar til Íslands og yfir hafið til fjölda áfanga­staða okkar í Norður Ameríku. Samstarfið styrkir Kefla­víkur­flugvöll sem tengi­miðstöð og styður við fjölgun ferða­manna,” segir hann.

Martin Gauss, forstjóri airBaltic, segir við sama tilefni það vera „sönn ánægja að gera samstarfs­samning við öflugt félag á borð við Icelandair. Samstarf félaganna eykur valmöguleika viðskipta­vina á flugi til Eystrasalts­ríkjanna og með flugi í gegnum Riga til Búdapest, Prag, Varsjá og fleiri áfanga­staða. Við hlökkum til samstarfsins við Icelandair sem mun gera viðskipta­vinum okkar aukna möguleika á ferða­lögum víða um heim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár