Ryanair stefnir á lággjaldaflug milli Evrópu og Bandaríkjanna

Lággjalda­flugfélagið Ryanair ætlar að hefja áætlunar­flug milli Evrópu og Banda­ríkjanna á næstu fjórum til fimm árum. Félagið segir að ódýrustu flugin muni kosta 10 pund, eða rúmlega 2.000 íslenskar krónur, aðra leið.

Stjórn Ryanair hefur samþykkt áætlanir um að hefja flug milli allt að fjórtán áfanga­staða í Evrópu annars vegar og Banda­ríkjunum hins vegar. Meðal áfanga­staða verða New York, Boston, Chicago og Miami frá London, Dublin og Berlín, að því er fram kemur í frétt Guardian.

Fyrir­tækið á nú í viðræðum við flugvéla­fram­leiðendur um kaup á lang­drægari flugvélum en það hefur nú yfir að ráða, en vill ekki greina frekar frá þeim viðræðum.

„Evrópskir neytendur vilja ódýrari ferðir til Banda­ríkjanna og það sama gildir um Bandaríkja­menn sem koma til Evrópu. Við sjáum þetta sem rökrétta þróun á evrópskum markaði,“ segir fyrir­tækið í tilkynningu.

Michael O'Leary, forstjóri Ryanair, hefur viðurkennt að stór hluti sæta í vélunum muni þurfa að vera viðskipta- eða fyrsta farrými, til þess að dæmið gangi upp. Hann segir einnig að í venju­legum sætum muni farþegar þurfa að borga aukalega fyrir allt annað og inni í verðinu eru ekki skattar.

Breska blaðið Telegraph hefur reiknað saman áætlaðan auka­kostnað við flugið með Ryanair. Með því að velja sæti, kaupa mat og vatn og vera með 15 kílóa tösku yrði verðið líklega komið upp í 185 pund, eða 38 þúsund krónur, samkvæmt útreikningunum. Hér má skoða útreikninga Telegraph.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár