Vill Costco og IKEA-áhrif á landbúnað til að lækka eitt hæsta matvælaverð í heimi

Ráðherra í rík­is­stjórn segir það ekki nátt­úru­lög­mál að vera með hæsta mat­vöru­verð í heimi. Tímabært sé að horfast í augu við þann kostnað sem vernd á land­bún­aði bakar neyt­endum, láta hags­muni almenn­ings ráða för og breyta kerf­inu.

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, segir að fátt geti betur tryggt Íslend­ingum sam­keppn­is­hæft mat­væla­verð en aukin sam­keppni í land­bún­aði. Það sé löngu tíma­bært að horfast í augu við þann mikla kostnað sem vernd gagn­vart slíkri sam­keppni veldur íslenskum neyt­endum. Það sé ekk­ert nátt­úru­lög­mál að við séum með eitt hæsta mat­væla­verð í heimi og þau miklu áhrif sem inn­koma Costco á íslenskan smá­sölu­markað, og áhrif IKEA á vöru­verð á sínum mark­aði hér­lendis, sýni hversu mik­il­væg öflug og góð sam­keppni sé fyrir lífs­skil­yrði okkar. „Það er löngu tíma­bært að breyta þessu. Látum hags­muni almenn­ings ráða för.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Þor­steinn birti í gær.

[links]Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, end­ur­skip­aði í sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga í lok jan­úar síð­ast­lið­ins. Sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingua var sér­stak­lega horft til þess að auka vægi umhverf­is- og neyt­enda­sjón­ar­miða í hópn­um, sem á að ljúka störfum sínum fyrir árs­lok 2019. Nýir búvöru­samn­ingar voru sam­þykktir á Alþingi í fyrra­haust, í tíð rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, og gilda til tíu ára. Áætlaður kostn­aður rík­­is­­sjóðs vegna þeirra er 13-14 millj­­arðar króna á ári og þeir festa þá verndar- og nið­ur­greiðslu­stefnu sem ríkt hefur í íslenskum land­bún­aði kyrfi­lega í sessi næstu árin. Í þessum tölum er ekki tekið til­lit til við­bót­ar­kostn­aðar neyt­enda vegna kerf­is­ins, en mat­ar­k­arfan hér­lendis er ein sú dýrasta í heimi, og mun dýr­ari en það sem greitt er fyrir hana í nágranna­löndum okkar. Björt fram­­tíð greiddi ein stjórn­­­mála­­flokka í heild sinni atkvæði gegn samn­ing­un­­um, og rauk nægj­an­lega mikið upp í fylgi í kjöl­farið til að tryggja sér áfram­hald­andi veru á þingi. Flokk­ur­inn mynd­aði í kjöl­farið rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki, öðrum þeirra flokka sem stóðu að gerð og und­ir­ritun nýrra búvöru­samn­inga, og Viðreisn, sem Þor­steinn og Þor­gerður Katrín sitja bæði á þingi fyrir.

[adspot]Í stjórn­­­ar­sátt­­mála nýrrar rík­­is­­stjórnar eru engar koll­­steypur í land­­bún­­aði. Þar segir að end­­ur­­skoðun búvöru­­samn­ings verði grunnur að nýja sam­komu­lagi við bænd­­ur, sem miðað er við að ljúki eigi síðar en árið 2019. Í sátt­­mál­­anum segir að af hálfu stjórn­­­valda verði „hvatt til að vægi almenn­­ari stuðn­­ings verði auk­ið, svo sem til jarð­­rækt­­­ar, fjár­­­fest­ing­­ar, nýsköp­un­­ar, umhverf­is­verndar og nýlið­un­­ar, en dregið úr sér­­tækum búgreina­­styrkj­­um. End­­ur­­skoða þarf ráð­­stöfun inn­­­flutn­ings­kvóta og greina for­­sendur fyrir frá­­vikum frá sam­keppn­is­lögum fyrir mjólk­ur­­iðn­­að­inn og gera við­eig­andi breyt­ing­­ar.“

Vill Costco og IKEA áhrifin á landbúnað

Und­an­farna mán­uði hefur Costco hrisst veru­lega upp í íslenskum dag­vöru­mark­aði. Fyr­ir­tækið opn­aði verslun sína í Garðabæ í maí og fyrstu vik­urnar var nán­ast fullt út að dyrum alla daga. Í könnun sem gerð var um miðjan júni, innan við mán­uði eftir opnun Costco, kom fram að 43 pró­sent lands­manna sögð­ust hafa farið í Costco frá því að versl­unin opn­aði. Önnur 49 pró­sent sögð­ust ætla að fara við tæki­færi en ein­ungis 7,7 pró­sent lands­manna sögð­ust að þeir ætli ekki að fara. Áhrif Costco hafa verið víð­tæk. Þannig hefur stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki lands­ins Hagar, sem reka meðal ann­ars versl­anir Bónus og Hagkaupa, tví­vegis sent frá sér aðkomu­við­vörun vegna sam­dráttar í sölu sem rekja má til opn­unar Costco. Hluta­bréfa­verð í Högum hefur lækkað um tæp 35 pró­sent á tæpum þremur mán­uðum.

Þor­steinn segir í stöðu­upp­færslu sinni að þau miklu áhrif sem inn­koma Costco á íslenskan smá­sölu­markað hefur haft sýni hversu mik­il­væg öflug og góð sam­keppni er fyrir lífs­skil­yrði okkar. „Áhrifa Costco gætir víða, hvort sem horft er til verð­lagn­ingar heim­il­is­tækja, hjól­barða, fatn­aðar, elds­neytis eða mat­væla. IKEA er annað dæmi um erlenda versl­un­ar­keðju sem hefur haft mikil og góð áhrif á vöru­verð hér á landi og áhuga­vert verður að fylgj­ast með áhrifum H&M á íslenska fata­verslun þegar fyrsta versl­unin opnar síðar í þessum mán­uði.

Erlend sam­keppni veitir inn­lendum aðilum nauð­syn­legt aðhald, lækkar vöru­verð fyrir okkur öll og tryggir meira vöru­úr­val en ella. Við eigum sífellt að leit­ast við að tryggja sem mesta sam­keppni til að tryggja sem lægst vöru­verð og mestan kaup­mátt. Um það eru flestir lands­menn vafa­lítið sam­mála. Við viljum að lífs­kjör hér á landi stand­ist sam­an­burð við nágranna­lönd okkar á öllum sviðum sam­fé­lags­ins, hvort sem horft er til launa, vaxta­kostn­aðar eða vöru­verðs.“

Þor­steinn segir að þetta leiði hug­ann að ýmsum þeim mörk­uðum sem enn búa við ríka vernd frá sam­keppni og það háa verð sem íslenskir neyt­endur greiði fyrir þá vernd. Mat­vöru­mark­að­ur­inn sé þar aug­ljóst dæmi. Með stöðu­upp­færslu sinni birtir hann mynd sem sýni grófan sam­an­burð á kostn­aði mat­ar­körf­unnar eftir löndum. Matvöru sé skipt í tvo flokka, inn­lenda mat­vörur sem nýtur ríkrar inn­flutn­ings­verndar, (mjólk, kjöt og ostar) og aðra mat­vöru sem nýtur lít­illar eða engrar verndar (inn­lend og erlend). Á mynd­inni sem Þor­steinn birtir má sjá að kostn­aður mat­ar­körf­unnar hér á landi trónir á topp­inum í þessum sam­an­burði.

„Hár kostn­aður þeirra mat­væla sem njóta ríkrar verndar skýrir stærstan hluta þess munar. Það er hins vegar mun minni verð­munur er á milli landa þegar kemur að þeim vörum sem búa við lítt eða óhefta sam­keppni. Það sýnir ótví­rætt kosti sam­keppn­innar, ekki aðeins hér á landi heldur ekki síður í sam­an­burð­ar­lönd­unum.

Fátt gæti betur tryggt Íslend­ingum sam­keppn­is­hæft mat­væla­verð en aukin sam­keppni í land­bún­aði. Það er löngu tíma­bært að horfast í augu við þann mikla kostnað sem verndin veldur íslenskum neyt­endum. Það er ekk­ert nátt­úru­lög­mál að við séum með eitt hæsta mat­væla­verð í heimi. Það er löngu tíma­bært að breyta þessu. Látum hags­muni almenn­ings ráða för.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár