Nýr samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga skipaður

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur end­ur­skipað í sam­ráðs­hóp um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingua var sér­stak­lega horft til þess að auka vægi umhverfis- og neyt­enda­sjón­ar­miða í hópnum.

Full­trúum hefur verið fjölgað úr tólf í þrettán. Umhverf­is­ráð­herra til­nefndir einn full­trúa og Félag atvinnu­rek­enda einn, til við­bótar þeim sem þegar voru skip­aðir sam­kvæmt til­nefn­ingu. Þá hefur skipan þriggja full­trúa af fimm sem fyrri ráð­herra skip­aði án til­nefn­ingar verið aft­ur­kölluð. Í þeirra stað hefur ráð­herra skipað Bryn­hildi Pét­urs­dóttur, fyrr­ver­andi alþing­is­mann og starfs­mann Neyt­enda­sam­tak­anna og Svan­fríði Jón­as­dóttur, sem verður for­maður hóps­ins. Skipan Guðrúnar Rósu Þór­steins­dóttur, sem átti að vera for­maður hóps­ins, Bjargar Bjarna­dóttur og Ögmundar Jón­as­sonar, fyrr­ver­andi alþing­is­manns, hefur verið aft­ur­kölluð.

Í frétta­til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að það sé mat ráð­herra „að mik­il­vægt sé að víð­tæk sam­vinna og sátt náist við breyt­ingar á búvöru­samn­ingi og búvöru­lögum. Í stjórn­ar­sátt­mála segir m.a. „… að við þessar breyt­ingar verði lögð áhersla á hags­muni og val­frelsi neyt­enda og bænda. Áfram verði tryggð fram­leiðsla heil­næmra, inn­lendra afurða í umhverf­is­vænum og sam­keppn­is­hæfum land­bún­aði.“ Breið aðkoma hags­muna­að­ila við end­ur­skoðun búvöru­samn­ings er því nauð­syn­leg. Er miðað við að end­ur­skoðun ljúki eigi síðar en árið 2019.“

Skipaði í hópinn eftir kosningar

Gunnar Bragi Sveins­son, frá­far­andi ráð­herra mála­flokks­ins, lauk upp­haf­lega við að skipa í sam­ráðs­hóp­inn 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, þremur vikum eftir kosn­ingar og mán­uði eftir að skipan hans átti upp­haf­lega að liggja fyr­ir­. Af þeim tólf full­­trúum sem skip­aðir voru í hóp­inn voru átta full­­trúar sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráðu­­neytis eða Bænda­­sam­­taka Íslands, þeir sömu og gerðu búvöru­samn­ing­anna í febr­ú­ar 2016 sem til stendur að end­ur­skoða. Laun­þeg­­ar, atvinn­u­lífið og neyt­endur áttu sam­tals fjóra full­­trúa. 

Kjarninn greindi frá því 11. jan­úar síð­ast­lið­inn að Þor­gerður Katrín ætl­aði sér að end­ur­skipa í hóp­inn. 

Bænd­ur hafa neit­un­ar­vald

Búvöru­samn­ingar til tíu ára voru und­ir­rit­aðir í febr­úar 2016 og sam­þykktir á Alþingi síð­ast­liðið haust. Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna þeirra er 13-14 millj­arðar króna á ári.

Ein­ungis 19 þing­­­­menn, eða 30 pró­­­­sent allra þing­­­­manna, greiddu atkvæði með búvöru­­samn­ing­unum þegar þeir voru sam­­­þykktir á Alþingi á í sept­­em­ber. Sjö sögðu nei en aðrir sátu hjá eða voru ekki við­staddir atkvæða­greiðsl­una sem mun móta eitt af lyk­il­­­­kerfum íslensks sam­­­­fé­lags, hið rík­­­­is­­­­styrkta land­­­­bún­­­­að­­­­ar­­­­kerfi, næsta ára­tug­inn.

Í lok ágúst lagði meiri­hluti atvinn­u­­­­vega­­­­nefndar fram breyt­ing­­­­ar­til­lögur á samn­ing­un­­­­um. Þegar þær voru kynntar var látið að því liggja að í til­­­lög­unum væri skýrt kveðið á um end­­­­ur­­­­skoð­un­­­­ar­á­­­­kvæði innan þriggja ára. Engar frek­­­ari breyt­ingar voru gerðar á lögum sem gera samn­ing­anna gild­andi eftir þær breyt­inga­til­lög­­­ur. Ákvæðið um end­­­ur­­­skoðun samn­ing­anna er þó ekki mjög skýrt. Í áliti meiri­hluta­­­nefndar atvinn­u­­­vega­­­nefndar sagði: „Meiri hlut­inn leggur áherslu á að við sam­­­þykkt frum­varps­ins nú eru fyrstu þrjú ár samn­ing­anna stað­­­fest og mörkuð fram­­­tíð­­­ar­­­sýn til tíu ára. Meiri hlut­inn leggur til ákveðna aðferða­fræði fyrir end­­­ur­­­skoðun samn­ing­anna árið 2019 og skal ráð­herra þegar hefj­­­ast handa við að end­­­ur­­­meta ákveðin atriði og nýtt fyr­ir­komu­lag gæti mög­u­­­lega tekið gildi í árs­­­byrjun 2020. Meiri hlut­inn leggur til að end­­­ur­­­skoð­unin bygg­ist á aðferða­fræði sem feli í sér víð­tæka sam­still­ingu um land­­­bún­­­að­inn, atkvæða­greiðslu um end­­­ur­­­skoð­aða samn­inga meðal bænda og afgreiðslu Alþingis á laga­breyt­ingum sem sú end­­­ur­­­skoðun kann að kalla á.“

Í breyt­ing­­­ar­til­lög­unni sjálfri sagði: „Eigi síðar en 18. októ­ber 2016 skal sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs- og land­­­bún­­­að­­­ar­ráð­herra skipa sam­ráðs­hóp um end­­­ur­­­skoðun búvöru­­­samn­inga. Tryggja skal aðkomu afurða­­­stöðva, atvinn­u­lífs, bænda, laun­þega og neyt­enda að end­­­ur­­­skoð­un­inni og skal henni lokið eigi síðar en árið 2019. Skulu bændur eiga þess kost að kjósa um nýjan búvöru­­­samn­ing eða við­bætur við fyrri samn­inga.

Kjarn­inn beindi fyr­ir­­­spurn til sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs- og land­­­bún­­­að­­­ar­ráðu­­­neyt­is­ins um hvort að það bæri að skilja lögin þannig að bændur myndu alltaf fá að kjósa um þá end­­­ur­­­skoðun sem muni eiga sér stað eigi síður en árið 2019. Svar ráðu­­­neyt­is­ins var já.

Þegar spurt var hvað myndi ger­­­ast ef bændur myndu hafna þeirri end­­­ur­­­skoðun í atkvæða­greiðslu var svar­ið: „Ef bændur hafna þeim breyt­ingum sem hugs­an­­­lega verða gerðar við end­­­ur­­­skoð­un­ina 2019 verður aftur sest niður og leitað frek­­­ari samn­inga.“

Mikil áhersla lögð á að fá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyti

Björt fram­tíð greiddi ein stjórn­mála­flokka í heild sinni atkvæði gegn samn­ing­un­um. Í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar eru engar koll­steypur í land­bún­aði. Þar segir að end­ur­skoðun búvöru­samn­ings verði grunnur að nýja sam­komu­lagi við bænd­ur, sem miðað er við að ljúki eigi síðar en árið 2019.

Í sátt­mál­anum segir að af hálfu stjórn­valda verði „hvatt til að vægi almenn­ari stuðn­ings verði auk­ið, svo sem til jarð­rækt­ar, fjár­fest­ing­ar, nýsköp­un­ar, umhverf­is­verndar og nýlið­un­ar, en dregið úr sér­tækum búgreina­styrkj­um. End­ur­skoða þarf ráð­stöfun inn­flutn­ings­kvóta og greina for­sendur fyrir frá­vikum frá sam­keppn­is­lögum fyrir mjólkur­iðn­að­inn og gera við­eig­andi breyt­ing­ar.“

Við­reisn lagði hins vegar mikla áherslu á að fá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið til að geta komið á breyt­ingum á þeim mála­flokk­um, þótt engar tíma­settar eða útfærðar breyt­ingar séu í stjórn­ar­sátt­mála. End­ur­skipun starfs­hóps um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga er fyrsta skrefið í þá átt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár