Donald Trump vill banna öllum múslimum að koma til Bandaríkjanna

Donald Trump, sem sækist eftir því að verða forseta­fram­bjóðandi Repúblíkanaflokksins, hefur kallað eftir því að landa­mærum Banda­ríkjanna verði að öllu leyti lokað fyrir múslimum. Þessi krafa Trump kemur í kjölfar árásanna í San Bernardino. The Guardian greinir frá.

Trump hefur oft látið umdeild ummæli falla um ákveðna kynþætti og innflytjendur síðan hann hóf sókn sína að því að hljóta útnefningu flokksins sem forseta­fram­bjóðandi hans í kosningunum sem fara fram á næsta ári. Þessi yfir­lýsing er þó líkast til sú róttækasta hingað til.

Trump rökstuddi kröfuna með því að það væri svo mikið hatur á meðal múslima alls staðar í heiminum í garð Bandaríkja­manna að það yrði að loka landa­mærunum fyrir þeim þangað til að það verður betur hægt að greina og skilja vanda­málið. „Landið okkar getur ekki fórnar­lamb hræðilegra árása fólks sem trúir einungis á Jihad."

Kosninga­stjóri Trump sagði að bannið sem hann væri að leggja til ætti að ná til allra múslima, einnig þeirra sem eru að sækja um hæli í landinu og ferða­manna sem vilja heimsækja það. Trump er sem stendur sá fram­bjóðandi repúblikana sem mælist með mest fylgi. Hann þykir þó sömuleiðis vera sá fram­bjóðandi flokksins sem eigi minnsta möguleika á að vinna Hillary Clinton í slagnum um forseta­embættið, en Clinton leiðir í skoðana­könnunum um hver verður fram­bjóðandi Demókrata­flokksins.

Ýmsir hafa þegar fordæmt ummælin. Á meðal þeirra er Martin O´Malley, sem sækist eftir því að verða forseta­fram­bjóðandi Demókrata­flokksins. Hann vændi Trump um fasisma í twitter-færslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár