Samherja hent úr viðskiptum hjá DNB

Norski bankinn DNB, helsti viðskipta­banki Samherja, hefur sagt upp öllum viðskiptum sínum fyrir fyrir­tækið.

Norska ríkis­sjónvarpið NRK fullyrðir á vef sínum að DNB bankinn, sem er í 34 prósent eigu norska ríkisins, hafi sagt upp viðskiptum sínum við íslenska sjávar­útvegs­fyrirtækið Samherja.

Í kjölfar umfjöllunar Kveiks, Stundarinnar, Wikileaks og Al Jazeera um viðskipta­hætti Samherja í Namibíu, þar sem kom fram að fjármunir sem urðu til vegna meintrar skatta­sniðgöngu eða peningaþvættis Samherja hefðu endað inni á reikningum hjá DNB, hóf bankinn innan­húsrannsókn á viðskiptum sínum við fyrir­tækið. Í lok nóvember 2019 greindi það svo frá þvi að norska efnahags­brota­lögreglan Økokrim væri að rannsaka bankann, í tengslum við rannsókn á viðskipta­háttum Samherja.

Umfjöllun ofan­greindra fjölmiðla leiddi í ljós að hluti þeirra peninga sem Samherji færði inn á reikninga í DNB í Noregi, sem voru meðal annars notaðir til að greiða sjómönnum í Afríku laun, væru frá félagi skráð í skatta­skjólinu Marshall-eyjum.

DNB lokaði á reikningana á árinu 2018 vegna þess að hann taldi óvissu um hver væri raun­verulegur eigandi félaganna sem nýttu þá og að verið væri að nota þá til að stunda peninga­þvætti. Norska efnahags­brota­lögreglan er að skoða þennan anga málsins auk þess sem hann hefur verið til skoðunar innan bankans.

Í umfjöllun Kveiks kom fram að Samherji hefði nýtt sér tvísköttunar­samning við eyjuna Máritíus í viðskiptum sínum í Namibíu og flutt hagnað sem varð til vegna veiða þar í lágskattarskjólið Kýpur, þar sem Samherji hefur stofnað tug félaga á undan­förnum árum. Frá Kýpur fóru peningarnir svo inn á banka­reikning Samherja í norska bankanum DNB, sem er að hluta í eigu norska ríkisins.

Opinberunin byggði annars vegar á tugþúsundum skjala og tölvu­pósta sem sýndu viðskipta­hættina svart á hvítu, og hins vegar á frásögn Jóhannesar Stef­ánssonar, fyrr­verandi verkefna­stjóra Samherja í Namibíu, sem játaði á sig fjölmörg lögbrot og sagðist hafa framið þau að undirlagi Þorsteins Más Baldvins­sonar, þáverandi forstjóra Samherja og eins aðal­eiganda fyrir­tækisins, og Aðalsteins Helga­sonar, sem var lengi yfir útgerð Samherja í Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár