Atvinnuleysi innan Evrópusambandsins heldur áfram að minnka

Hagvöxtur innan Evrópu­sambandsins heldur áfram að vera sterkur. Í fyrra var hann sá mesti í áratug. Atvinnu­leysi heldur áfram að minnka og hefur ekki verið minna frá því fyrir hrun. Verðbólga er 1,4 prósent.

Emmanuel Macron, Angela Merkel og Jean-Claude Juncker, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins.
Emmanuel Macron, Angela Merkel og Jean-Claude Juncker, fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Atvinnu­leysi innan Evrópu­sambandsins heldur áfram að lækka. Í mars síðastliðnum var það 7,1 prósent. Í nóvember síðastliðnum mældist atvinnu­leysi í öllum aðildar­ríkjunum 28 7,3 prósent sem var minnsta atvinnu­leysi sem mælst hefur innan sambandsins frá því í hrun­mánuðinum október 2008, eða í rúm níu ár. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Þar segir að fjöldi atvinnu­lausra innan Evrópu­sambands­ríkjanna hafi verið 17,5 milljónir í mars­mánuði. Þar af bjuggu 13,8 milljónir þeirra innan þeirra ríkja sem eru með evru sem gjald­miðil, en atvinnu­leysi innan þess svæðis mældist 8,5 prósent. Það er minnsta atvinnu­leysi sem mælst hefur innan evru­svæðisins frá því í lok árs 2008.

Minnst mældist atvinnu­leysið í Tékklandi (2,1 prósent), Möltu (3,3 prósent) og í Þýska­landi (3,4 prósent). Það mælist hins vegar langmest í Grikk­landi (20,6 prósent), Spáni (16,1 prósent) og á Ítalíu (11,0 prósent). Atvinnu­leysið í Grikk­landi hefur þó minnkað mest allra aðildar­ríkja á undan­förnum árum, en það var 23,2 prósent haustið 2016.

Til sam­an­burðar má nefna að atvinnu­leysi í Banda­ríkj­unum var 4,1 pró­sent í mars 2018. Á Íslandi var það 2,4 pró­sent í apríl síðastliðnum.

Atvinnuleysi ungmenna dregst líka saman

Atvinnu­leysi á meðal ungs fólks hefur lengi verið mikið vanda­mál í sumum Evr­ópu­sam­bands­ríkj­um, sér­stak­lega Grikk­landi (42,3 prósent), Spáni (35 prósent) og Ítal­íu (31,7 prósent). Vert er að taka fram að þetta eru þau þrjú lönd heims sem talin eru vera með stærstu svörtu hag­kerfin. Tölur Eurostat ná ekki yfir þá sem stunda svarta atvinnu­starf­semi.

Alls voru 3,5 milljónir manna undir 25 ára aldri atvinnu­lausir í löndum Evrópu­sambandsins í mars síðastliðnum, og 2,5 milljónir þeirra voru frá ríkjum innan evru­svæðisins. Atvinnu­lausum ungmennum innan sambandsins hefur fækkað um 409 þúsund frá mars­mánuði 2017.

Lág verðbólga og stöðugur vöxtur

Verðbólga er almennt lág innan Evrópu­sambandsins. Hún mælist nú 1,4 prósent en var tvö prósent fyrir ári síðan og fór yfir fjögur prósent í kringum hrunið. Innan evru­svæðisins mælist verð­bólgan 1,2 prósent og hefur lækkað um 0,7 prósentu­stig á einu ári. Til saman­burðar er verðbólga á Íslandi 2,3 prósent og 2,5 prósent í Banda­ríkjunum.

Efna­hagur Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna hefur stöðugt verið að styrkj­ast á und­an­förnum árum. Árið 2016 var til að mynda meiri hag­vöxtur á evru­svæðinu en í Banda­ríkj­unum og var það í fyrsta sinn frá hruni sem það gerð­ist.

Hagvöxtur á síðasta ári var 2,4 prósent og spár gera ráð fyrir því að hann verði í kringum tvö prósent í ár og á næsta ári. Það er mesti hag­vöxtur sem orðið hefur innan sam­bands­ins í ára­tug. Evru­svæðið vex hraðar en Bretland, sem ætlar að segja sig úr sambandinu vorið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár