Snapchat metið á 2.500 milljarða króna

Hugbúnaðar­fyrirtækið Snapchat, sem fram­leiðir hin geysivinsælu snjall­símaforrit undir sama nafni, er í dag metið á 19 milljarða Bandaríkja­dala eða sem nemur tæplega 2.500 milljörðum króna. Bloomberg greindi frá þessu á vef sínum í gær, en forsvars­menn Snapchat eru nú að sækja sér fé til fjárfesta sem gerir ráð fyrir þessum verðmiða á hlutafé félagsins.

Snapchat er búnaður sem gerir notendum kleift að deila mynd­skeiðum með öðrum, sem síðan eyða sér sjálf. Þá hefur Snapchat nýlega farið að bjóða upp á frétta­þjónustu inn í App-inu, og hyggst framþróa þá þjónustu frekar á næstunni.

Snapchat seeking round of funding that values company from $16 billion to $19 billion, source says - @BloombergNews http://t.co/S59kUFMJtH

— Breaking News (@BreakingNews) February 17, 2015

Fyrir­tækið freistar þess að safna 500 milljónum Bandaríkja­dala, eða sem nemur 65 milljörðum milljörðum, til þess að þróa hugbúnaðinn áfram og þá ekki síst frétta­þjónustu­hlutverkið.

Verð­miðinn er nálægt því sem var raunin þegar Facebook keypti WhatsApp samskipta­hugbúnaðar­fyrirtækið, en þá greiddi Facebook 22 milljarða Bandaríkja­dala. Árið 2013 bauð Facebook þrjá milljarða Bandaríkja­dala fyrir Snapchat, en stofnendurnir neituðu því boði. Notendur WhatsApp eru nú 700 milljónir manna um allan heim, en notendur Snapchat eru svipað margir, en þeir eru mun virkari í sinni notkun. Um 70 prósent notenda Snapchat er fólk undir 25 ára aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár