Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins

Ari Edwald, fram­bjóðandi Miðflokksins í Reykjavík, á að baki feril í viðskipta­lífinu þar sem umdeilt samstarf við Jón Ásgeir Jóhannesson, stuðningur við ESB-aðild, ummæli um að velta sektar­greiðslum MS yfir á almenning og útrás til Rússland hafa vakið umtal. Hann hagnaðist á „óhagnaðar­drifna leigu­félaginu“ Heima­völlum og stýrði framboði Davíðs Oddssonar til forseta samhliða forstjóra­starfi MS.

Ari Edwald
Ari Edwald Oddviti Mið­flokks­ins í Reykja­vík hefur stýrt fyr­ir­tækj­unum 365 miðlum, Mjólk­ur­sam­söl­unni og Ísey útflutn­ingi en einnig fjár­fest í gegnum eign­ar­halds­fé­lag sitt og tekið þátt í ýmissi stjórn­mála- og hags­muna­bar­áttu.

Ari Edwald var kynntur sem fyrsti maður á lista Miðflokksins fyrir borgar­stjórnar­kosningar á mánudag eftir að myndband fór í dreifingu á samfélags­miðlum af jakkafata­klæddum nýjum oddvita sem ekki sást í andlitið á.

Ara hefur verið stillt upp sem reynslu­miklum manni úr viðskipta­lífinu til að stýra Reykja­víkurborg eins og vel reknu fyrirtæki. Viðskipta­saga hans er fjöl­breytt en hann fór úr starfi í pólitík yfir í hagsmuna­baráttu og þaðan í að leiða tvö fyrirtæki sem oft hefur gustað um. Inn á milli sinnti hann eigin fjár­festingum, meðal annars með stærsta leigu­félagi landsins á sínum tíma. Þá hafa stjórnmála­skoðanir hans ekki alltaf rímað við það sem Miðflokkurinn stendur fyrir nú.

Ari er 61 árs gamall, menntaður í lögfræði við Háskóla Íslands og með MBA-gráðu frá University of San Francisco. Hann starfaði í Heimdalli og Sambandi ungra sjálfstæðis­manna og varð aðstoðar­maður Þorsteins Pálssonar til átta ára, fyrst í dóms- og kirkjumála­ráðuneytinu og …

Kjósa
60
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Þetta yfirlit sýnir að það ætti enginn að kjósa Miðflokkinn.
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ótrúleg umsvif eins manns.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Ég segi nú bara, hjálpi mér heilagur Hans klaufi.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár