Húsleit hjá móðurfélagi Ölgerðarinnar

Samkeppnis­eftirlitið rannsakar ætluð brot Ölgerð­ar­innar á banni við misnotkun á markaðs­ráðandi stöðu. Rann­sóknin tekur á til tíma­bilsins frá ársbyrjun 2020 til dagsins í dag.

Markaðsráðandi
Mark­aðs­ráð­andi Ölgerðin er gríð­ar­stór á íslenskum neyt­enda­mark­aði og rann­sakar Sam­keppn­is­eft­ir­litið nú hvort fyr­ir­tækið hafi mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína. Mynd: Kristinn Magnússon

Samkeppnis­eftirlitið hefur framkvæmt húsleit hjá Ölgerðinni vegna rann­sóknar á ætluðum brotum gegn banni samkeppnis­laga við misnotkun á markaðs­ráðandi stöðu. Húsleitin fer fram á grund­velli úrskurðar Héraðs­dóms Reykja­víkur.

Bera hf, móður­félag Ölgerðarinnar, greindi frá rann­sókninni í tilkynningu til Kaup­hallarinnar í morgun. Þar sagði að rann­sóknin tæki til tíma­bilsins frá og með árinu 2020 til dagsins í dag.

Í tilkynningu sem Samkeppnis­eftirlitið sendi frá sér í kjölfarið kemur fram að rann­sóknin nái til háttsemi Beru, dóttur­félagsins Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og annarra tengdra félaga á drykkjar­vörumarkaði.

Markmiðið sé að ganga úr skugga um hvort Ölgerðin sé í markaðs­ráðandi stöðu á þeim mörkuðum sem rann­sóknin tekur til og jafnframt hvort fyrir­tækið hafi virt bann samkeppnis­laga við misnotkun slíkrar stöðu.

Eftir­litið segist hafa talið nauðsynlegt að framkvæma húsleit til að afla gagna og tryggja varð­veislu þeirra sem kunna að hafa þýðingu fyrir rann­sóknina. 

„Samkeppnis­eftirlitið áréttar að framkvæmd húsleitar felur …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár