Mikill meirihluti fylgjandi lægri sköttum á tekjulága

Könnun ASÍ sýnir almennan stuðning við lækkun skatta á þá sem eru með undir 500 þúsund krónur á mánuði í heildar­tekjur fyrir skatt.

Drífa Snædal
Drífa Snædal ASÍ segir skatt­byrði hinna tekju­lægstu hafa hækkað. Mynd: Heiða Helgadóttir

83% aðspurðra eru hlynntir því að launafólk með heildar­tekjur undir 500 þúsund krónum á mánuði fyrir skatt fái meiri skatta­lækkun en aðrir. Þetta kemur fram í nýrri skoðana­könnun sem Gallup gerði fyrir Alþýðu­samband Íslands (ASÍ).

Í könnuninni kemur fram að stuðningur við slíka skatta­lækkun sé mikill í öllum aldurs- og tekju­hópum, en mestur hjá þeim tekju­lægstu. Könnunin var netkönnun, gerð dagana 1. til 12. mars. Var úrtakið 1440 manns af öllu landinu og svar­hlutfall 57%.

„Þessi niður­staða rímar vel við þær hugmyndir um skattkerfis­breytingar sem ASÍ kynnti í lok janúar,“ segir í tilkynningu frá ASÍ. „Markmið þeirra tillagna var að létta byrðum af fólki með lágar- og milli­tekjur, auka jafnrétti og koma á sann­gjarnri skatt­heimtu. Þegar ríkis­stjórnin kynnti sínar skatta­lækkunar hugmyndir nokkrum vikum seinna kom í ljós að sama skatta­lækkun átti að ganga upp allan tekju­stigann, þ.e. það skipti ekki máli hvort einstaklingurinn væri með 300 þús kr. eða 2,3 milljónir í mánaðar­tekjur, allir fengju það sama.“

Skatt­byrði hinna tekju­lægstu hefur hækkað mest á undan­förnum árum, samkvæmt rannsókn hagdeildar ASÍ frá 2017, og því dregið úr jöfnunar­hlutverki skatt­kerfisins. „Munar þar mestu að skatt­leysismörk hafa ekki fylgt launa­þróun og vaxta- og barn­bótakerfin hafa markvisst verið veikt og eru nú í skötulíki miðað við það sem áður var,“ segir í tilkynningu ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár