Markaðir á suðupunkti - verður Grikkland gjaldþrota?

Vísitalan The Stoxx Europe 600 lækkaði um 1,8 prósent í þessari viku, sem er mesta lækkun það sem af er ári. Mesta lækkunin var í Grikk­landi og nágranna­ríkjum, en nú er raun­veruleg hætta talin vera á því að Grikkland muni ekki geta staðið við skuld­bindingar sínar í lok mánaðarins og verða gjald­þrota, í þeim skilningi.

Samkvæmt fréttum Reuters þarf gríska ríkið að kafa djúpt í alla vasa ríkisins til þess að geta staðið við skuld­bindingar upp á tvo milljarða evra um mánaðar­mótin, jafnvirði tæplega 300 milljarða króna, gagnvart sínum eigin þegnum og lána­drottnum.

Wall Street Journal segir mikinn titring á fjármála- og hlutabréfa­mörkuðum, á það við um bæði Evrópu og Banda­ríkin. Fjár­festar séu að búa sig undir að Grikkir lendi í vandræðum, og að bakslag komi í efnahags­batann í Evrópu.

Eins og greint var frá fyrr í dag,, meðal annars í frétt Kjarnans, er vandi Grikkja mál málanna á fundi Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins í Washington. Christine Lagarde, framkvæmda­stjóri sjóðsins, lét hafa eftir sér í þriðjudag að ekki kæmi til greina að gefa neitt eftir þegar kæmi að skuldum Grikkja við sjóðinn, enda myndi það aðeins gera stöðunni erfiðari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár