Grikkir sagðir enn einu skrefi nær gjaldþroti og útgöngu úr Evrunni

Málefni Grikkja eru alls­ráð­andi á fundi Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins sem nú fer fram í Washington. Svo virð­ist sem Grikkir hafi stigið eitt skref í við­bót í átt að greiðslu­falli og mögu­lega því að þurfa að hætta í evru­sam­starf­inu und­an­farna daga.

Greint var frá því í gær Grikkir hefðu óskað eftir því við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn að end­ur­greiðslum á lánum þeirra í maí og júní yrði frestað. Frétt­irnar voru þó ekki stað­festar af grískum yfir­völdum. Afborg­anir lán­anna, sem Grikkir eiga að standa skil á þá, nema 2,5 millj­örðum evra, sem jafn­gildir 364 millj­örðum króna. Þessari bón Grikkja var illa tekið. Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóri AGS, sagði að frestun á afborg­unum myndi aðeins gera ástandið verra.

Yanis Varoufakis fjár­mála­ráð­herra mætti til Washington í gær á vor­fund AGS. Þar er talið lík­legt að hann gæti gert aðra til­raun til þess að fá AGS til að fresta afborg­unum af lán­unum, en það er ekki talið lík­legt til árang­urs. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur alla tíð haft það prinsipp að end­ur­semja ekki um lán.

George Osborne, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, sagði við Guardian í dag að ástandið í Grikk­landi væri mesta áhyggju­efni alþjóða­hag­kerf­is­ins. Stemmn­ingin á fundi Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins væri sýni­lega dap­ur­legri en á síð­ustu fundum og það sé ljóst að minnstu mis­tök eða mis­reikn­ingar gætu auð­veld­lega snúið við efna­hags­bat­anum í Evrópu.

Þýskaland vill að stjórnvöld hætti að blekka almenning


Það að Grikkir skuli hafa beðið um þetta þykir sýna að þeir sjálfir eru ekki vissir um að hægt verði að ná sam­komu­lagi um áfram­hald­andi lán­veit­ingar frá AGS og Evr­ópu­sam­band­inu. Economist segir þetta dæmi­gerða hegðun grískra stjórn­valda, það sé aldrei hægt að vita hverju von er á frá þeim. Grísk stjórn­völd hafi breytt um stefnu innan evru­hóps­ins og orðið upp­vís að því að halda ekki trúnað, og það hafi eyði­lagt trú­verð­ug­leika stjórn­valda.

Wolfgang Schäuble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, krafð­ist þess á mið­viku­dag að stjórn­völd í Grikk­landi hættu að blekkja almenn­ing í land­inu og réð­ust strax í erf­iðar aðhalds­að­gerðir. Lausn mála væri nefni­lega algjör­lega í höndum Grikk­lands. Forseti Seðla­banka Evrópu, Mario Draghi, tal­aði á svip­uðum nótum og sagði það algjör­lega í höndum Grikkja hversu lengi bank­inn gæti haldið land­inu á floti með neyð­ar­lánum.

Áfram­hald­andi veit­ing neyð­ar­lána til Grikk­lands strandar á því að sam­komu­lag náist um það hvaða aðhalds­að­gerðir og umbætur þeir ráð­ast í. Um þetta hefur enn ekki verið samið. Grikkir höfðu von­ast til þess að ná sam­komu­lagi fyrir fund evru­hóps­ins þann 24. apríl næst­kom­andi, en nú virð­ast að minnsta kosti mörg önnur ríki gera sér grein fyrir því að svo verður ekki. Grikkir eiga sam­kvæmt kröfu ESB að einka­væða nokkur fyr­ir­tæki og ráð­ast í miklar umbætur á vinnu­mark­aði og líf­eyr­is­kerf­inu, en hafa hingað til ekki útskýrt hvernig þeir ætla að gera það.

Þá hefur það skemmt fyrir stöðu þeirra að fyrst vör­uðu þeir við því að þeir gætu orðið uppi­skroppa með fjár­magn í febr­úar, svo í mars og nú í apríl.

Þrýstingur heima fyrir og í nágrannaríkjunum


Póli­tískur þrýst­ingur eykst lika heima fyrir. Alekos Flambouraris, sem er ráð­herra og náinn sam­verka­maður for­sæt­is­ráð­herra, ýjaði að því í sjón­varps­við­tali í vik­unni að haldin yrði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um áfram­hald­andi þátt­töku í evru­sam­starf­inu. Líklegt er talið að svarið í slíkri atkvæða­greiðslu væri já, sem gæti gefið for­sæt­is­ráð­herr­anum Alexis Tsipras mögu­leika á að ýta til hliðar vinstrisinn­uð­ustu ein­stak­ling­unum í Syriza-flokknum, sem hafa komið í veg fyrir aðhalds­að­gerð­irnar.

Þá greinir Kathi­mer­ini, eitt stærsta dag­blað Grikk­lands, frá því í dag að nágranna­ríki Grikk­lands, þar sem útibú grískra banka eru starf­andi, hafi sett mik­inn þrýst­ing á bank­anna. Seðla­bankar í Albaníu, Búlgaríu, Kýpur, Rúmeníu, Serbíu, Tyrk­landi og Makedóníu hafi allir gert þá kröfu á gríska banka sem starfa í ríkj­unum að þeir komi algjör­lega í veg fyrir að þeir geti orðið fyrir skaða vegna gríska kerf­is­ins, ef samn­inga­við­ræð­urnar skyldu ekki ganga. Dag­blaðið kallar þetta sótt­kví, og að hún hafi verið talin nauð­syn­leg til þess að koma í veg fyrir að mögu­legt fall Grikk­lands smiti út frá sér til þess­ara ríkja.

Þetta þykir benda enn frekar til þess að ríkin í kringum Grikk­land séu að und­ir­búa sig undir það að ríkið fari í þrot.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár