Áætlun Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir að arðgreiðslur frá Orkuveitunni hækki

Reykja­víkurborg, sem er stærsti eigandi Orkuveitu Reykja­víkur, áætlar að arðgreiðslur út úr henni verði á bilinu fimm til sex milljarðar króna á ári á næstu árum. Gangi þær áætlanir eftir verða arðgreiðsl­urnar fjórum sinnum hærri 2026 en þær voru 2019.

Bjarni Bjarnason er forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Bjarni Bjarna­son er for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur. Mynd: RÚV

Í fimm ára fjárhags­áætlun Reykja­víkurborgar er gert ráð fyrir að arðgreiðslur frá Orkuveitu Reykja­víkur (OR), sem borgin á 93,5 prósent hlut í, muni hækka á komandi árum. OR greiddi út 1,5 milljarð króna í arð til eigenda sinna árið 2019, þrjá milljarða króna í fyrra og fjóra milljarða króna í ár.

Samkvæmt áætlun Reykja­víkurborgar til næstu ára er reiknað með að OR borgi stærsta eiganda sínum 25,4 milljarða króna í arðgreiðslur á árunum 2022 til 2026. Á því tímabili er áætlað að hlutdeild borgarinnar í arðgreiðslum orku­fyrir­tækisins verði á bilinu 4,7 til 5,6 milljarðar króna á ári. Samkvæmt því má ætla að heildar­arðgreiðslur OR verði, samkvæmt fimm ára áætluninni, fimm milljarðar króna strax á næsta ári og nái hámarki árið 2026 þegar þær fara í sex milljarða króna. Aðrir eigendur OR eru Akranes (5,5 prósent) og Borgar­byggð (eitt prósent).

Gangi þessi áætlun eftir munu arðgreiðslur út úr OR því hafa fjór­faldast milli 2019 og 2026 og tvöfaldast frá því í fyrra og fram til ársins 2026.

OR er næst stærsta orku­fyrirtæki landsins á eftir Lands­virkjun. Rekstrar­tekjur þess voru 48 milljarðar króna í fyrra og hagnaður 5,6 milljarðar króna. Eignir móður­félagsins voru metnar á 394,2 milljarða króna í lok síðasta árs. Undir OR eru fjögur dóttur­fyrirtæki: Veitur, sem eru stærsta veitu­fyrirtæki landsins, Orka nátt­úrunnar sem fram­leiðir og selur rafmagn og miðlar heitu vatni til höfuð­borgar­svæðisins, Ljós­leiðarinn, sem selur heimili fyrir­tækjum aðgang að gagna­flutnings­kerfi, og Carbfix, sem vinnur að samnefndri aðferð til kolefnis­bindingar.

Ábyrgðargjald mun fara lækkandi

Í fimm ára áætluninni segir að gert sé ráð fyrir arðgreiðslum frá OR í samræmi við áætlanir fyrir­tækisins, eða að arðgreiðslurnar séu háðar því að arðgreiðslu­skilyrði séu uppfyllt.

Jafnframt er gert ráð fyrir tekjum af svokölluðu ábyrgðar­gjaldi frá OR í samræmi við núverandi mat óháðs aðila á láns­kjörum, með og án eigenda­ábyrgðar, með tilliti til höfuðstóls gjald­skyldra skuld­bindinga á hverjum tíma fyrir sig.

Ábyrgðar­gjaldið hefur verið greitt frá árinu 2005 vegna ábyrgða sem eigendur OR hafa veitt á skuldir samstæðunnar. Í fyrra var gjaldið 0,85 prósent á lán vegna sérleyfis­starfsemi og 0,61 prósent á lán vegna samkeppnisstarfssemi. Á árinu 2020 greiddi OR alls 647 milljónir króna til eigenda sinna í ábyrgðar­gjald. Þar af hafa farið um 605 milljónir króna til Reykja­víkurborgar miðað við hlutdeild borgarinnar í fyrir­tækinu.

Í áætlun Reykja­víkurborgar er gert ráð fyrir því að ábyrgðar­gjaldið sem greiðist til Reykja­víkur fari lækkandi á komandi árum. Þannig reiknar borgin með að hlutdeild hennar í gjaldinu verði 412 milljónir króna á næsta ári en að það lækki svo ár frá ári og verði 141 milljón króna árið 2026.

Gert ráð fyrir 66 milljarða króna hagnaði á árunum 2023 til 2026

Í fimm ára áætlun Reykja­víkurborg­ar­innar sem var lögð fram í liðinni viku er gert ráð fyrir að afkoma sam­stæð­unnar batni á tíma­bil­inu 2023 til 2026. Gert er ráð fyrir að hagn­aður sam­stæð­unnar verði sam­tals 66,2 millj­arðar króna á því fjög­urra ára tíma­bil­i.

Þar er gert ráð fyrir að A-hlut­inn, sá sem er fjár­magn­aður með skatt­tekj­um, skili afgangi strax á árinu 2023 og að hann verði tveir millj­arðar króna. Rekstr­ar­hagn­að­ur­inn fari svo batn­andi í kjöl­farið og verði sam­tals 20,5 millj­arðar króna á árunum 2024 til 2026. B-hlutinn, sem nær utan um fyrirtæki í eigu borgarinnar, þar sem OR skiptir langmestu máli, er þó áfram sem áður sá hluti samstæðunnar sem skilar mestur hagnaði.

Stefnt er að því að reka sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar með 8,6 millj­arða króna afgangi á næsta ári sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar fyrir árið 2022. Sá hluti rekstrar Reykja­vík­­­ur­­borgar sem fjár­­­magn­aður er með skatt­­tekj­um, svo­­kall­aður A-hluti, verður hins vegar að óbreyttu rek­inn með 3,4 millj­arða króna halla. Sá halli bæt­ist við 9,7 millj­arða króna halla á A-hlut­anum í ár sam­kvæmt útkomu­spá og 5,8 millj­arða króna halla á honum í fyrra.

Sam­an­lagt er því gert ráð fyrir að A-hluti rekstrar Reykja­vík­ur­borgar verði rek­inn í 18,9 millj­arða króna halla á árunum 2020 til 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár